fasteignasölur.is
Jörfabakki 16
1 af 34

Um eignina





***EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA****





Hrafnkell og Atli á Lind kynna þessa fallegu og vel skipulögðu fjögurra herbergja íbúð á 1. hæð.
Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð á afar smekklegan máta. Sjá nánar neðar í lýsingu.
Eignin er endaíbúð og þá með gluggum á þrjá vegu. Opið eldhús á tvo vegur og mjög rúmgóð og björt stofa sem er samliggjandi borðstofu. Þetta er björt íbúð með stórum gluggum sem hleypa góðri birtu inn. Baðherbergið er með baðkari og walk-in sturtu. Þvottaaðstaða er innan íbúðar.
Stutt er í góð leiksvæði, skóla, verslun og þjónustu.

Nánari upplýsingar:
Hrafnkell Pálmi LGF. / 690 8236 / hrafnkell@fastlind.is
Atli Karl LGF. / 662 4252 / atli@fastlind.is 


Skipulag: komið er inn í anddyrið þar sem baðherbergið og eldhúsið eru á vinstri hönd. Stofa og borðstofa beint af augum og svefnherbergin til hægri.

Nánari lýsing:
Anddyrið er opið með parket á gólfi með góðum fatasápum. 
Eldhúsið er með fallegri innréttingu með miklu vinnurými og skápaplássi. Góður gluggi til suðurs og flæðandi parket á gólfi. Ofnar í góðri vinnuhæð. 
Stofan og borðstofan mynda opið og bjart rými með stórum gluggum til suðurs og vesturs. Parket á gólfi og útgengt á góðar svalir til suðurs. Gluggar til suðurs og vesturs.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með fallegum flísum. Upphengt salerni, góður vaskaskápur, walk-in sturta og baðkar. Þvottaaðstaða með rými fyrir þvottavél og þurrkara. 
Svefnherbergi I er rúmgott með parket á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi II er með parket á gólfi og rými fyrir innfelldan fataskáp.
Svefnherbergi III er opið herbergi í núverandi mynd en mjög auðvelt að loka og gera hefðbundið herbergi.
Sér geymsla í kjallara 9,2 fm.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.

Við Jörfabakka 16 eru 6 íbúðir. Tilheyrir heildarhúsinu Jörfabakka 2-16.
Hlutfallstala í mhl. er 15,53% og heildarhúsi og lóð 1,84%. 
Á lóðinni eru 59 bílastæði. 
Íbúð merkt 102 á 1. hæð.
Ekki er lyfta í húsinu.

Endurnýjun:
Það sem var gert innan íbúðar:
Eftirfarandi var gert árið 2022: 
  • Baðherbergi stækkað og endurskipulagt 
  • Nýjar flísar frá Birgison
  • Blöndunartæki úr Tengi
  • Baðkar frá Tengi
  • Skipt um allar neysluvatnslagnir og frárennsli innan íbúðar
  • Eldhús endurskipulagt. Ný innrétting úr IKEA. Ný heimilstæki, ofn, örbylgja, ísskápur, uppþvottavél, helluborð. Allt úr heimilstækjum. Ný blöndunartæki úr Tengi
  • Skipt um allar neysluvatnslagnir og niðurföll innan íbúðar
  • Gólfhiti settur í alla íbúðina
  • Ofnar fjarlægðir
  • Öll íbúð flotuð
  • Nýtt parket úr Birgison
  • Nýjar hurðar úr Birgison
  • Milliherbergi opnað (auðvelt að loka aftur)
  • Skipt um rafmagnstöflu
  • Dregið nýtt rafmagn
  • Loft tekið niður og einangrað á milli
  • Innfelld ljós sett í (frá Johan Rönning)
  • Nýjir skápar í svefnherbergi úr IKEA

Eftirfarandi var gert árið 2025:
  • Nýr skápur í anddyri

Endurbætur á ytra byrði:
  • Skipt um þak 2023
  • Hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla sett á bílaplan árið 2025

Jörfabakki 16, 109 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 204-8286 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Jörfabakki 16 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 204-8286, birt stærð 98.1 fm.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
72.000.000 kr.734 þ./m²
+44,3% á 5 árum
10. janúar 2022Þinglýstur kaupsamningur
49.900.000 kr.509 þ./m²
+17,4% á 1 ári
8. október 2021Fyrsta sala
42.500.000 kr.433 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Jörfabakki 16

109 Reykjavík
72.000.000 kr.734 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1969TegundFjölbýlishúsStærð98,1 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20482864Fasteignamat61.950.000 kr.Brunabótamat48.450.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑