fasteignasölur.is
Kleppjárnsbraut 3
1 af 37

Um eignina

Helgafell fasteignasala ehf. og Gunnar Sv. Friðriksson lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna 162 fm. parhús með 4 svefnherbergjum, þ.m.t. bílskúr, á draumastað við Kleppjárnsbraut 3 á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði sem er aðeins í rúmlega klukkustundarakstursfjarlægð frá Reykjavík. Hentugt hús fyrir stóra fjölskyldu þar sem möguleiki er á fimmta svefnherberginu án þess að skerða opið rými hússins. Nýtt harðparket. Nýleg eldhúsinnrétting og nýleg tæki í eldhúsi. Ný loftljós í alrými. Nýjar innihurðir. Nýjir gluggar og gler á suðurhlið hússins. Ný gönguhurð úr bílskúr í baklóð. Húsið allt nýmálað að þakjárni undanskildu.

EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA  -  ENDILEGA BÓKIÐ SKOÐUN.


ÝTIÐ HÉR TIL AÐ NÁLGAST SÖLUYFIRLIT EIGNARINNAR

Nánari lýsing:
Forstofa - flísar á gólfi - fatahengi - gestasalerni inn af forstofu sem einnig er flísalagt - nýr vaskur og skápur undir vask.
Stofa - björt með gólfsíðum gluggum - harðparket á gólfi - útgengt á sólpall með heitum potti.
Eldhús - nýleg eldhúsinnrétting ásamt nýjum ofni, nýju helluborði, nýrri uppþvottavél og tvöföldum ísskáp með klakavél - harðparket á gólfi - opið við borðstofu.
Hjónaherbergi 1 - nýtt harðparket á gólfi - fataskápur.
Herbergi 2 - nýtt harðparket á gólfi.
Herbergi 3 - nýtt harðparket á gólfi.
Herbergi 4 - nýtt harðparket á gólfi.
Aukaherbergi (5) - á svefnherbergisgangi - nýtt harðparket - góður gluggi - er nýtt sem skrifstofurými í dag - auðvelt að breyta í fimmta svefnherbergið.
Baðherbergi - flísar á gólfi og veggjum - upphengt salerni - baðkar með sturtuaðstöðu - fín innrétting - handklæðaofn - góður gluggi.
Þvottahús - flísar á gólfi - útgengt í garð framan við húsið - stór geymsla inn af þvottahúsi - lúga upp í þakrými.
Garður - stór garður - heitur pottur - sólpallur - niðurgrafið trampólín fylgir eigninni ásamt rólum.
Bílskúr - heitt og kalt vatn og rafmagn - ný gönguhurð úr bílskúr út í bakgarð - ný málaður (sprautaður).

Á Kleppjárnreykjum er lítil verslun, sundlaug, íþróttahús, tvær líkamsræktarstöðvar, leiksskóli með leikvelli og grunnskóli fyrir nemendur frá 1. – 10. bekk. Á skólalóðinni eru leiktæki og leikvellir sem íbúar geta nýtt sér.   
Stutt er í verslanir og afþreyingau af ýmsu tagi og er mikið um náttúruperlur í nágrenninu. Má þar t.d. nefna Krauma, Húsafell, Hvalfjörðinn, Glym, Hvanneyri, Skorradalinn, Baulu, Grábrók og Paradísarlaut. 
Mikil er um fallegar hjóla- og reiðleiðir og gaman er að hjóla hringinn í Borgarfirðinum sem er 75 km eða á alla fallegu náttúruperlurnar í kring. 

Allar frekari upplýsingar veitir Gunnar Sv. Friðriksson lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 842 2217 / gunnar@helgafellfasteignasala.is

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Helgafell Fasteignasala
66.700.000 kr.412 þ./m²
+167,9% á 8 árum
9. ágúst 2018Fyrsta sala
24.900.000 kr.154 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Kleppjárnsbraut 3

320 Reykholt (Borgarfirði)
66.700.000 kr.412 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1971TegundRað-/parhúsStærð161,8 m²Herbergi5InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF23704137Fasteignamat48.600.000 kr.Brunabótamat81.840.000 kr.
Skráð hjá
Helgafell Fasteignasala
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑