fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Las Colinas
1 af 24

Um eignina

Spánarheimili kynnir:  Til sölu vönduð og björt penthouse íbúð á hinu eftirsótta og verðlaunaða svæði Las Colinas Golf & Country Club á Costa Blanca á Spáni. Svæðið býður upp á rólegt og grænt umhverfi, fyrsta flokks golfvöll, veitingastaði og aðra þjónustu, auk stuttrar akstursfjarlægðar að ströndum Miðjarðarhafsins. Íbúðin er með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum og er skipulögð á hagnýtan og nútímalegan hátt. Bjart alrými tengir saman stofu, borðstofu og eldhús og þaðan er útgengt á rúmgóðar svalir með útsýni yfir grænu svæðin í kring. Það er einnig aðgengi að stórum einkaþaksvölum, sem bjóða upp á gott útirými og víðáttumikið útsýni yfir umhverfið og niður að Miðjarðarhafinu Um svæðið: Las Colinas golfvallasvæðið hefur verið valið eitt besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbbi á Campoamor ströndinni. Glæsileg líkamsræktarstöð er á svæðinu og auk þess tennis- og körfuboltavellir. Algjör lúxus fyrir vandláta. Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is --- Eignarnúmer: 2411 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/170489/gorgeous-penthouse-apartment-at-las-colinas-golf-country-club/

Spánarheimili kynnir - Las Colinas

1053 Spánn - Costa Blanca
73.300.000 kr.632 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 2 bað
TegundEinbýlishúsStærð116 m²Herbergi5BílskúrLyftaFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 24 myndir

Upp ↑