fasteignasölur.is
Bláargerði 32B
1 af 20

Um eignina

Glæsileg og fullbúin fjögurra herbergja íbúð með bílskúr í parhúsi á einni hæð - NÝBYGGING!
Stofa og eldhús eru í opnu rými með upptekið loft, innfeldri lýsingu og útgengt á timburverönd við suðurhlið hússins með fallegu útsýni og tengingu við villta náttúru. Eldhús er vel skipulagt með rúmgóðri innréttingu og bæði ísskápur og uppþvottavél fylgja með í kaupunum.
Baðherbergi er flísalagt, þar er rúmgóð sturta, mjög fín innrétting og handklæðaofn.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni, öll með parket á gólfi og fataskápar eru í öllum herbergjum.
Forstofa er flísalögð með fataskápum.
Þvottahús er flísalagt og með góðri innréttingu. Innangengt er í 32,8 m² bílsúr í gegnum þvottahús. Í bílsúr er gólf með epoxy, bílhurð og milliloft.
Mjög góð og aðgengileg geymsla (fellistigi) er yfir hluta íbúðarinnar.
Húsið er klætt að utan með Alusink-klæðningu í bland við slétt stení.
Vel skipulögð og falleg eign með fallega náttúru í bakgarðinum.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald (0,3% af brunabótamati) eftir að eignin hefur verið afhent. Reglugerð um skipulagsgjald.

Nánari upplýsingar hjá INNI fasteignasölu. 

Bláargerði 32B

700 Egilsstaðir
87.500.000 kr.618 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2025TegundRað-/parhúsStærð141,5 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF25407221Fasteignamat6.240.000 kr.
Skráð hjá
INNI fasteignasala
HeimilisfangFagradalsbraut 11, 700, EgilsstaðirSími580-7905

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 20 myndir

Upp ↑