fasteignasölur.is
Hringhamar 19  (701) ÞAKÍBÚÐ
1 af 8

Um eignina

Sýnum samdægurs...
Íbúð 701 er glæsileg þriggja herbergja með tveimur bílastæðum í kjallara. Stórar þaksvalir (68.8fm) & tveimur baðherbergjum.
LIND Fasteignasala kynnir: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Hringhamar 17-19 í nýju hverfi í Hamranesi í Hafnarfirði. Íbúðirnar afhendast án gólfefna. Allar íbúðir er búnar með sérstöku loftræstiskerfi. Umframgæði sem 
tryggja mjög góð loftskipti og góða nýtingu á varma. Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis ásamt vaski og Grohe blöndunartækjum frá Byko. Helluborð og blástursofn eru af gerðinni AEG frá Ormsson (sjá nánar á www.ormsson.is) Gufugleypir í eldhúsi er einnig frá Ormsson. ATH húsið er í Svansvottunarferli.


// VILDARKORT LINDAR //
Við vekjum sérstaka athygli á því að allir kaupendur hjá Lind fasteignasölu fá Vildarkort Lindar sem veitir 30% afslátt hjá samstarfsaðilum okkar, en þeir eru:
Parki (gólfefni), Z brautir og gluggatjöld, Húsgagnahöllin, Betra bak, Dorma, Flügger litir, S. Helgason steinsmiðja, Vídd og Húsasmiðjan.

Íbúð 701: 135.0 fm 3ja herbergja íbúð á 7. hæð. Íbúðin er 135.0 fm þar af 9.0 fm geymsla, tvö bílastæði í kjallara fylgir íbúðinni. 69,8 fm þaksvalir fylgja íbúðinni.
-Rúmgóðar 68.9 fm þaksvalir með útsýni.
Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins www.hringhamar.is

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
KRISTJÁN ÞÓRIR HAUKSSON Í S: 696-1122 / KRISTJAN@FASTLIND.IS
ANDRI FREYR HALLDÓRSSON Í S: 762-6162 / ANDRI@FASTLIND.IS


Gólf íbúða eru fleytt og tilbúin fyrir endanlegt gólfefni, nema í baðherbergi og í þvottahúsi en þar eru flísar á gólfum. Einnig eru flísar á veggjum baðherbergja, flísar eru frá Parka. Fataskápar í herbergjum og forstofu eru af vandaðri gerð frá Axis. Borðplötur eru í eldhúsi, baði og þvottahúsi þar sem við á og eru frá Axis.

Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis ásamt vaski og Grohe blöndunartækjum frá Byko. Helluborð og blástursofn eru af gerðinni AEG frá Ormsson (sjá nánar á www.ormsson.is) Gufugleypir í eldhúsi er einnig frá Ormsson.

** Baðherbergi: Baðinnrétting kemur frá Axis. Hreinlætistæki og handklæðaofn eru frá Byko. Salernið er upphengt og innbyggt. Hitastýrð blöndunartæki verða við sturtu. Gólf eru flísalögð og veggir að hluta upp í loft

**Baðherbergi 2: Baðinnrétting kemur frá Axis. Hreinlætistæki og handklæðaofn eru frá Byko. Salernið er upphengt og innbyggt. Hitastýrð blöndunartæki verða við sturtu. Gólf eru flísalögð og veggir að hluta upp í loft

Loftræsting: Sérstakt loftræstikerfi er fyrir hverja íbúð. Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr baði, þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður um 80% af varmanum. Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki á að vera þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunnar.

Frágangur sameignar: Anddyri/stigahús er lokað og er það flísalagt á aðkomuhæð með uppsettum póstkössum. Stigar og stigapallar eru teppalagðir, handrið eru á stigagöngum. Allar útidyrahurðir frágengnar og er rafmagnsopnun á aðalinngöngum. Sameign er upphituð með ofnakerfi. Raflagnir í sameign eru fullbúnar með ljósum, sbr. teikningar. Loftræstilagnir eru lagðar skv. teikningu.

Sameign: Í bílgeymslu er lagt grunnkerfi fyrir bílhleðslu. Eigendur stæða í bílgeymslu 
geta sett upp eigin hleðslustöð og tengt inn á grunnkerfi bílgeymslu

Skólar og leikskólar eru í nágrenni og eru öruggar göngu- og hjólaleiðir að þeim. Einnig er fyrirhugað að nýr leikskóli rísi í næsta nágrenni.
Hverfið er í nálægð við náttúru og er staðsetningin einstök með tilliti til útivistar. Í næsta nágrenni er Ástjörn, Hvaleyrarvatn og ein vinsælasta gönguleiðin í Hafnarfirði, upp á Helgafell.


Eignin afhendist skv meðfylgjandi skilalýsingu. 

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
KRISTJÁN ÞÓRIR HAUKSSON Í S: 696-1122 / KRISTJAN@FASTLIND.IS
ANDRI FREYR HALLDÓRSSON Í S: 762-6162 / ANDRI@FASTLIND.IS


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900.- með vsk. 
5. Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það verður lagt á

Hringhamar 19 (701) ÞAKÍBÚÐ

221 Hafnarfjörður
129.900.000 kr.962 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 3 bað
Byggingarár2024TegundFjölbýlishúsStærð135 m²Herbergi3BílskúrLyftaFasteignanúmerF252926520Fasteignamat67.900.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 8 myndir

Upp ↑