fasteignasölur.is
Tjörn lóð 27
1 af 24

Um eignina

Miklaborg kynnir: Það er eitthvað svo óvenjulega einstakt við þessa lóð, jaðarlóð með kyrrð og frið í deiliskipulögðu sumarhúsahverfi skammt frá Laugarvatni, Reykholti, Friðheimum svo ekki sé talað um alfaraleið gullna hringsins. Gullmoli á suðurlandi með víðsýnt útsýni. Lóðin er 5398 fm leigulóð með leigusamningi til 50 ára frá 2013. Húsið er skráð 40,1 fm hjá fasteignaskrá en til viðbótar er ca. 9 fm geymsla og svefnloft. Pallur umhverfis húsið með skjólgirðingu og heitum potti. Frábært kauptækifæri.

Heitt og kalt vatn ásamt rafmagni.


Sjá kynningu um eignina hér https://www.littlebluehouseiceland.com/video-tour og staðsetningu hér https://ja.is/kort/?type=aerial&page=1&q=tj%C3%B6rn%20l%C3%B3%C3%B0%2027&x=427277&y=413682&nz=17.97

Nýlegt harðparket er á gólfum en komið er inn í forstofu með fatahengi.  Tvö svefnherbergi annað með kojum og hitt rúmar tvíbreitt rúm.  Eldhús og stofa í opnu björtu rými þaðan sem er útgengt á pall.  Baðherbergi er með sturtuklefa, skápainnréttingu undur handlaug og flísalagt gólf.  Svefnloft er til viðbótar við uppgefna fermetra og þar gætu 4-6 manns gist en þar er opnanlegt fag.

Inntaksgeymsla er til hliðar við aðalinngan bústaðar og einnig er ca. 9 fm verkfærageymsla þar sem mætti t.d. koma fyrir þvottavél.

Lóðarleiga er rúmlega 100 þús á ári og kostnaður vegna hitaveitu ca. 10 þús á mánuði.  Lóðarleigusamningur gildir í 50 ár frá 2013.

Staðsetning hússins er góð, stutt á marga þekktar perlur suðurlands ásamt golfvöllum Kiðjabergs, Öndverðarness og Flúða.  Opinbert leyndarmál sem bíður eftir kaupanda sem vill njóta og lifa.


Nánari upplýsingar veitir

Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
27.990.000 kr.698 þ./m²
+107,3% á 8 árum
23. október 2018Fyrsta sala
13.500.000 kr.337 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Tjörn lóð 27

806 Selfoss (dreifbýli)
27.990.000 kr.698 þ./m²
Sumarhús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1998TegundSumarhúsStærð40,1 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2351008Fasteignamat24.900.000 kr.Brunabótamat31.050.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑