fasteignasölur.is
Einihraun 10
1 af 12

Um eignina

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Einihraun 10, Bifröst, 311 Borgarbyggð.
Um er að ræða 2ja herbergja íbúð á neðri hæð í fjölbýlishúsi, byggt úr steinsteyptum einingum 53 fm að stærð skv. skráningu FMR. byggt árið 2002. Hitaveita er á svæðinu.


Íbúðin er í útleigu, leigusamningur gildir til 28.2.2027.

Nánari lýsing:
Stofa og eldhús mynda alrými. Eldhúsinnrétting er L-laga og fylgja tæki af eldri gerði. Eitt svefnherbergi með fataskápum. Baðherbergi er með sturtuklefa og salerni, dúkur er á gólfi og vegg, tengi fyrir þvottavél. Öll gólf eru dúklögð. Geymsla er í sameiginlegu rými í kjallara.

Hér er um mjög áhugaverða eign að ræða hvort sem er til heilsársbúsetu eða til frístundanota. Bifröst er í fögru umhverfi.  Óþrjótandi möguleikar eru  til útivistar með vinsælum gönguleiðum að Hreðavatni, á Grábrók og að fossinum Glanna. Margvísleg þjónusta er á svæðinu s.s. leikskóli, hótel með veitingastað og golfvöllur.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala. Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi.


Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup m.v. 50% eignarhlut eða meira og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.
 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Nes fasteignasala
20.500.000 kr.387 þ./m²
+12,6% á 2 árum
21. maí 2024Fyrsta sala
18.200.000 kr.343 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Einihraun 10

311 Borgarnes (dreifbýli)
20.500.000 kr.387 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2002TegundFjölbýlishúsStærð53 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22582375Fasteignamat16.800.000 kr.Brunabótamat31.150.000 kr.
Skráð hjá
Nes fasteignasala
HeimilisfangBorgarbraut 57, 310Sími497-0040

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 12 myndir

Upp ↑