fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Daya Nueva/Dolores
1 af 14

Um eignina

Spánarheimili kynnir: Falleg 109,30 m² parhús á tveimur hæðum sem standa á einkalóðum frá  195,17 m² til 218,61 m² að stærð. Verkefnið samanstendur af 12 húsum sem eru hönnuð með þægindi og góða nýtingu í huga. Hvert hús hefur að geyma þrjú rúmgóð svefnherbergi og tvö fullbúin baðherbergi, eldhús er opið við stofu/borðstofu með útgengi út á verönd þar sem fullkomið er að njóta veðurblíðunnar til fulls allt árið um kring. Möguleiki á einkasundlaug gegn 19.900 € aukagjaldi. Verð er frá 399.900 € upp í 449.900 €. Nánar um svæðið:Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi. Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is --- Eignarnúmer: 2420 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/170498/new-build-villas-in-daya-nueva/

Spánarheimili kynnir - Daya Nueva/Dolores

1053 Spánn - Costa Blanca
58.600.000 kr.538 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 2 bað
TegundEinbýlishúsStærð109 m²Herbergi5BílskúrFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 14 myndir

Upp ↑