Um eignina
PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.
Perla Investments kynnir:3 svefnherbergja íbúð í glæsilegum íbúðarkjarna
Glæsileg ný íbúð í skemmtilega hverfinu El Raso í Guardamar, frábær staðsetning.
Íbúðin er með 3 svefnherbergjum með innbyggðum fataskápum og 2 baðherbergjum. Bjart og rúmgott alrými með fullbúnu eldhúsi með gæða heimilistækjum, borðstofu og stofu þaðan sem útgengt er á mjög rúmgóða afgirta verönd. Íbúðinni fylgir einnig sér bílastæði í bílakjallara og aðgangur að glæsilegum sameiginlegum garði þar sem er að finna stóra sundlaug, innilaug, leiksvæði fyrir börn, bocca völl, púttvöll og stór græn svæði þar sem hægt er að njóta sólarinnar sem skín í meira en 300 daga á ári.
Erum með mikið úrval eigna á skrá í þessu frábæra íbúðahverfi.
Í nærliggjandi umhverfi er að finna alla nauðsynlega þjónustu og afþreyingu, s.s. mikið úrval veitingahúsa, matvöruverslanir o.fl. Í innan við 15 mínútur akstur finnurðu svo 4 golfvelli, tvær verslunarmiðstöðvar (Las Habaneras og Zenia Boulevard), hinn spennandi og þéttsetna miðbæ Torrevieja, tívolí, hin fallegu náttúrulegu saltvötn Torrevieja sem og hið glæsilega verndað náttúrusvæði sem liggur við sjóinn milli La Mata og Guardamar bæjarins.
Hafðu samband til að fá frekari upplýsinga um þessa æðislegu eign!
Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á https://www.perlainvest.com/ic/soluskra/costa-blanca-su-ur/el-raso/3-svefnherbergja-ibu-i-glaesilegum-ibu-arkjarna-587.html
Ref: A547
Fylgdu okkur á Facebook - www.facebook.com/Perlainvest
Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com . Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.
Bjóðum einnig uppá á leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/
Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com
Perla Inv. - 3 svefnherbergja íbúð í glæsilegum íbúðarkjarna
Allar 38 myndir
Upp ↑




































