fasteignasölur.is
Norðurstígur 5
1 af 20

Um eignina

Trausti fasteignasala, Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali og Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali kynna: Björt og falleg 3-4ja herbergja íbúð með miklum karakter á neðri hæð í fallegu tvíbýlishúsi á eftirsóttum stað í gamla vesturbænum í Reykjavík, steinsnar frá gömlu höfninni. Norðurstígur er róleg vistgata en þaðan er gengið inn í fallegt hellulagt port sem var tekið í gegn árið 2020, stemmingin í portinu er eins og þorp í borg og veitir íbúum mikið næði. Íbúðin hefur mikinn sjarma en haldið hefur verið í gamla stílinn þar sem upprunalegar gólffjalir fá að njóta sín sem og pottofnar og á tveim stöðum sést í fallega múrsteinshleðslu hússins, fallegir loftlistar og rósettur prýða loftin. Í íbúðinni eru tvær stofur, rúmgott eldhús/borðstofa, eitt svefnherbergi er á efri hæðinni en úr borðstofu er gengið niður í kjallara hússins en þar er 17 fm rými með tveimur gluggum, sem í dag er nýtt sem svefnherbergi.
Sjón er sögu ríkari. Fjallað var um eignina í þáttunum Falleg íslensk heimili.

Hellulagt bílastæði við hlið hússins fylgir. Íbúðin er skráð 83,3 fm hjá HMS.

Nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 8966020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is og Kristján Baldursson með tölvupósti á kristjan@trausti.is. 


Nánari lýsing eignar:
Gengið er inn í fremri stofu sem er björt og rúmgóð með upprunalegum gólffjölum. 
Innaf fremri stofu er hugguleg innri stofa þar sem upprunalegur múrssteinsveggur fær að njóta sín í einu horninu. Afar falleg tvöföld hurð aðskilur stofurnar.
Eldhús og borðstofa eru í einu rými sem er rúmgott og bjart, innréttingin var máluð og á hana sett falleg borðplata frá Happy Furniture.  Gorenje ofn frá 2017 sem passar afar vel við stíl hússins,  keramikhelluborð endurnýjað 2020. Frá eldhúsi er gengið út á sameiginlegan pall sem snýr að baklóð hússins.
Herbergið uppi er rúmgott og bjart.
Baðherbergi er með antico vinyl dúk á gólfi, upphengt klósett, vaskur í innréttingu, fallegur panill á veggjum, sturta, gluggi.
Frá borðstofu er gengið niður hringstiga í 17 fm rými sem er að hluta nýtt sem svefnherbergi, þaðan er innangengt í sameiginlegt rúmgott þvottahús og geymslu.
Gólfefni íbúðarinnar eru upprunalegar viðarfjalir sem gefa íbúðinni mikinn sjarma og eru í öllum rýmum fyrir utan baðherbergi og kjallara. 

Einfalt en heillegt gler er í flestum gluggum í íbúðinni. Eignin stendur á einkalóð.

Þessi eign er einstök og afar sjaldgæft að íbúðir við Norðurstíg komi í sölu sem hafa þennan mikla sjarma og sérstöðu. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða hjá Kristjáni Baldurssyni með tölvupósti á kristjan@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
78.000.000 kr.936 þ./m²
+39,3% á 5 árum
7. september 2021Þinglýstur kaupsamningur
56.000.000 kr.672 þ./m²
+90,5% á 7 árum
19. nóvember 2014Þinglýstur kaupsamningur
29.400.000 kr.353 þ./m²
+50,4% á 8 árum
15. febrúar 2007Fyrsta sala
19.550.000 kr.235 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Norðurstígur 5

101 Reykjavík
78.000.000 kr.936 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn
Byggingarár1902TegundFjölbýlishúsStærð83,3 m²Herbergi4FasteignanúmerF200052510Fasteignamat65.900.000 kr.Brunabótamat39.750.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 20 myndir

Upp ↑