fasteignasölur.is
Unnarstígur 4
1 af 25

Um eignina

Trausti fasteignasala, Hallgrímur Hólmsteinsson, löggiltur fasteignasali, og Kristján Baldursson, löggiltur fasteignasali, kynna afar fallega lítið niðurgrafna hæð með sér inngangi í tvíbýli við Unnarstíg 4, 101 Reykjavík. 
Íbúðin hefur öll verið tekin í gegn á undanförnum árum. Húsið stendur við fallega götu á rólegum stað í gamla Vesturbænum, í göngufæri frá miðbænum og menningunni. 

Íbúðin er skráð 96,7 fm hjá HMS.

Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is og Kristján Baldursson með tölvupósti á kristjan@trausti.is.


Nánari lýsing eignar:
Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar í opnu rými með eldhúsi, furuborð á gólfi. 
Eldhúsið er með nýlega fallega innréttingu, innbyggðri uppþvottavél og furuborð á gólfi.
Barnaherbergi er rúmgott með furuborðum á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum, furuborð á gólfi.
Baðherbergi er með snyrtilegri ljósri innréttingu, náttúruflísum á gólfi og baðkari með sturtuaðstöðu.
Þvottahúsið er inn af baðherberginu og þaðan er útigengt í bakgarðinn. Þvottahúsið er rúmgott með innréttingu og vaskborði, náttúruflísar á gólfi og gólfhiti.
Lítil geymsla er inn af þvottahúsi með hillum, náttúruflísar á gólfi, gólfhiti.

Fallegur gróinn garður, steinsteyptur veggur um garðinn, og sólrík verönd við inngang. 

Þessi eign er í sérflokki, á afar rólegum stað í göngufæri frá miðbæ Reykjavíkur. Allar nánari upplýsingar veitir veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða Kristján Baldursson með tölvupósti á kristjan@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
79.900.000 kr.826 þ./m²
+61,4% á 9 árum
7. nóvember 2017Þinglýstur kaupsamningur
49.500.000 kr.512 þ./m²
+55,2% á 2 árum
18. júní 2015Þinglýstur kaupsamningur
31.900.000 kr.330 þ./m²
+48,4% á 8 árum
30. mars 2007Fyrsta sala
21.500.000 kr.222 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Unnarstígur 4

101 Reykjavík
79.900.000 kr.826 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1924TegundFjölbýlishúsStærð96,7 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20020908Fasteignamat74.300.000 kr.Brunabótamat43.600.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑