fasteignasölur.is
Tangagata  2
1 af 15

Um eignina

124,6 fm. steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum byggt árið 1950.

Efri hæð hússins sem er 80,6 fm. að stærð skiptist í forstofu, hol, tvö  svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og tvær samliggjandi stofur. Út af stofu er gengið út á nýlegan ca. 30 fm. sólpall.

Úr eldhúsi er gengið niður á neðri hæð sem er 44 fm. að stærð.  Skiptist hún í  forstofu, tvö herbergi og þvottahús. Útbúa mætti  sér íbúð á neðri hæð.

Nýleg innrétting og tæki eru á baðherbergi. Nýlegir gluggar eru á efri hæð nema í svalahurð. Þá eru nýlegar lagnir að ofnum á efri hæð hússins. Að utan er húsið klætt með álklæðningu. Járn á þaki er nýlegt.
Steypt plata er á milli hæða og yfir íbúð á efri hæð.

Neðri hæð þarfnast standsetningar að innan.   

Ágætt útsýni er úr stofu og af sólpalli.

Opið svæði er fyrir aftan húsið og er þar barnaleikvöllur.

Tangagata 2

340 Stykkishólmur
51.000.000 kr.409 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 1 bað
Byggingarár1950TegundEinbýlishúsStærð124,6 m²Herbergi6InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF2116296Fasteignamat40.350.000 kr.Brunabótamat58.750.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasala Snæfellsness
HeimilisfangAðalgata 3, 340 StykkishólmurSími438-1199

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑