fasteignasölur.is
Miðfell 6
1 af 45

Um eignina

Rúmgott og bjart einbýlishús á einni hæð auk tvöfalds innangengs bílskúrs einstaklega vel staðsett á skjólsælum stað í Miðfellshverfinu í Hrunamannahreppi skammt frá Flúðum. Á jörðinni er einnig stálgrindarhús á steyptum grunni sem býður upp á margvíslega notkunar möguleika. Jörðin er mjög gróin og er skráður 1 hektari og er eignarlóð.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 696,4 fm. og þar af er íbúðarhúsið 167,8 fm., tvöfaldur bílskúr 48,6fm. og stálgrindarhús 480 fm. 


Nánari lýsing:
Húsið  sem er skráð lögbýli er timburhús á einni hæð og er byggt árið 1979.  Húsið er bárujárnsklætt á tveimur hliðum og var skipt um glugga á þeim hliðum.  Auðvelt er að breyta skipulagi hússins að innan þar sem léttir veggir eru í húsinu. 
Í dag eru í húsinu fimm góð svefnherbergi með skápum í hluta þeirra. 
Stofa og borðstofa rúmgóðar og bjartar með fallegu útsýni, parket á gólfi. Útgengt er út á suður verönd í bakgarði hússins úr stofunni, steyptur heitur pottur við veröndina. 
Rúmgott eldhús með góðum borðkrók og flísum á gólfi. 
Baðherbergi með baðkari, sturtuklefa, gluggi og flísalagt gólf.  
Þvottaherbergi rúmgott með geymslu innaf og gestasalerni
Tvöfaldur bílskúr 48,6 fm. með tvennum bílskúrshurðum og með malargólfi. Fyrir framan bílskúrinn er rúmgott bílaplan með möl. 

Á lóðinni er stálgrindarhús skráð 480 fm. á steyptum grunni. Skv. skráningu er húsið alifuglahús en hefur ekki verið í notkun síðustu ár nema sem geymsla. 

Hitaveituréttindi er eign húeiganda og því lítill kyndikostnaður. Kalt vatn tekið úr fjallinu fyrir húsin á svæðinu.  Borað var fyrir vatni sem fyllir 20000ltr.  miðlunartank sem miðlar vatninu til húsanna.

Einstök náttúruperla á skjólgóðum stað í Hrunamannahreppi með glæsilegu útsýni til suðurs.
Snjómokstur og sorphirða á svæðinu er þannig að aðgengi er gott allan ársins hring.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is

 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Miðfell 6

846 Flúðir
98.900.000 kr.142 þ./m²
Einbýlishús5 svefn · 2 bað
Byggingarár1979TegundEinbýlishúsStærð696,4 m²Herbergi7InngangurMargir inngangarFasteignanúmerF22036551Fasteignamat87.453.000 kr.Brunabótamat169.300.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 45 myndir

Upp ↑