fasteignasölur.is
Asparfell 6
1 af 28

Um eignina

Falleg, björt og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð í góðu lyftuhúsi á 4. hæð við Asparfell 6, Reykjavík. 
Húsið hefur fengið gott viðhald gegnum árin. Húsið er klætt með viðhaldslítilli klæðningu. Eignin er laus við kaupsamning. 

Samkv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð alls 93,6 fm. og þar af er geymsla 4,5 fm. 

Eignin skiptist í hol, eldhús, stofu, svalir, 2 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.

Nánar um eignina:
Forstofa er með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Eldhús er með fallegri innréttingu, helluborð, vifta, tvennir bakarofnar í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi og rúmgóður borðkrókur.
Stofa / borðstofa er rúmgóð með parketi á gólfi og útgent út á suðursvalir.
Hjónaherbergi með fataherbergi inn af herberginu og parket á gólfi.  
Svefnherbergi er með parketi á gólfi. 
Baðherbergi með baðkari, vaskur, salerni, tengi fyrir þvottavél, flísalagði veggir og dúkur á gólfi. 
Geymsla íbúðar er á jarðhæð hússins.

Á hæðinni er sér þvottahús fyrir íbúðir á þessarri hæð ásamt sameiginlegri geymslu.
Sameiginleg hjóla + vagnageymsla á jarðhæð.

Sameign er snyrtileg. Teppalagður stigagangur og flísar á jarðhæð.
Lóðin er falleg og gróin og með leiktækjum fyrir börn. Næg bílastæði á lóð.

Húsinu hefur verið vel viðhaldið í gegnum árin meðal annars var farið í stórar framkvæmdir á gluggum, múr og þaki árið 2022 til 2023. . Einnig var nýlega komið fyrir djúpgámum á bílastæði. Öflugt húsfélag er í eigninni og húsvörður í föstu starfi á dagvinnutíma. Næg bílastæði eru við húsið. 
 
Stutt er í alla almenna þjónustu hvort sem er í göngufæri eða með strætisvagnasamgöngum, leik- og grunnskólar í göngufæri ásamt líkamsrækt, sundlaug, bókasafni og íþróttaiðkun. 

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
65.900.000 kr.704 þ./m²
+20,9% á 4 árum
30. mars 2022Þinglýstur kaupsamningur
54.500.000 kr.458 þ./m²
+196,2% á 12 árum
20. júlí 2010Þinglýstur kaupsamningur
18.400.000 kr.154 þ./m²
−15,6% á 1 ári
19. mars 2009Fyrsta sala
21.800.000 kr.183 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Asparfell 6

111 Reykjavík
65.900.000 kr.704 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1973TegundFjölbýlishúsStærð93,6 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF20518494Fasteignamat65.800.000 kr.Brunabótamat48.300.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑