Um eignina
Á efri hæð er rúmgóð stofa og borðstofa, svalir, eldhús, baðherbergi og tvö rúmgóð svefnherbergi.
Nánari lýsing:
Forstofa með lausum fataskáp.
Ágætt svefnherbergi með nýju parketi á gólfi.
Hol/gangur með nýju parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, góð aðgengileg sturta.
Rúmgott svefnherbergi með nýju parketi á gólfi og fataskáp.
Þvottahús með vaski, vinnuborði og hillum. Geymsla með hillum inn af þvottahúsi.
Hol/gangur með parketi á gólfi, þar er steyptur teppalagður stigi milli hæða. Nýtt stálhandrið á stiganum.
Efri hæð:
Eldhús er opið inn að stofu, hvít innrétting, eldavél, tengi fyrir uppþvottavél, nýtt parket á gólfi, mjög gott skápapláss og borðkrókur.
Stór og björt stofa og borðstofa með nýju parketi á gólfi, útgengt út á svalir, frábært útsýni yfir fjörðinn. Hvítmálaður panill í lofti.
Svefnálmugangur með parketi, þar er hleri upp í risloft.
Baðherbergi með hvítri innréttingu og baðkari, nýjar flísar á gólfi.
Hjónaherbergi með stórum fataskáp, nýtt parket á gólfi, útgengt út á ágæta verönd bakatil.
Stórt svefnherbergi með parketi á gólfi (var áður tvö herbergi en búið að sameina).
Bílskúr: Innangengt inn í 28 m² bílskúr úr forstofu, steypt málað gólf, hillur og vinnuborð, heitt og kalt vatn, bílskúrshurð úr timbri og inngönguhurð.
Steypt 2ja bíla bílastæði fyrir framan hús.
Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Urðarvegur 52
Staðsetning
Allar 8 myndir
Upp ↑






