fasteignasölur.is
Fannborgartangi 18
1 af 5

Um eignina

Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í sölu nýbygginguna Fannborgartanga 18, Flúðum.
Um er að ræða einbýlishús sem er í byggingu.  Eignin er alls 201,2 fm þar af sambyggður bílskúr 40,8 fm.
Innra skipulag. 
Forstofa
Fjögur rúmgóð svefnherbergi.
Tvö baðherbergi.  Úr öðru baðherberginu er útgengt á lóð. 
Stofa og eldhús er opið í eitt.  Úr eldhúsi er útgengt út á lóð þar er yfirbyggt  þakskegg  sem er 12,7 fm 
Sjónvarpshol.
Bílskúr innanmál  breidd 5,51m x lengd 6,5m.  Innangengt er í bílskúr úr forstofu einnig er gönguhurð undir þakskeggi við inngang. 

Húsið afhendist á byggingarstiginu fullbúið að utan en rúmlega fokhelt að innan skv. skilalýsingu byggingaraðila.  Búið er að einangra og ganga frá rakasperru og rafmagnsgrind.  Einnig er búið setja upp eldvarnarvegg milli íbúðar og bílskúrs.  Búið er að taka inn rafmagn og heitt vatn.   Hægt er að fá eignina afhenta lengra komna eftir nánara samkomulagi. Húsið er byggt úr timbri, klætt að utan með liggjandi báruáli og standandi timbur klæðning.  Þak er niðurtekið kraftsperruþak með 4° þakhalla. Ofan á sperrur kemur lekta, 18 mm þakkrossviður og að lokum 2 lög af bræddum þakpappa. Vindskeiðar eru úr lituðu áli og álrennur innfeldar. Útihurðir og gluggar eru ál-tré

Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996  steindor@husfasteign.is   
,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"  
     
                                                                                                          
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
5. Skipulagsgjald og inntaksgjöld skv. gjaldskrá. 

Fannborgartangi 18

845 Flúðir
71.000.000 kr.353 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
TegundEinbýlishúsStærð201,2 m²Herbergi5InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF25283869Fasteignamat52.500.000 kr.
Skráð hjá
HÚS fasteignasala
HeimilisfangAusturvegi 26, Selfoss, Strandgötu VestmannaeyjumSími497-1155

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 5 myndir

Upp ↑