fasteignasölur.is
Kötlufell 3
1 af 29

Um eignina

Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson, löggiltur fasteignsali kynna í einkasölu bjarta og fallega 2ja herbergja íbúð á 4. hæð við Kötlufell 3 í Reykjavík. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, matvörubúð og sundlaug. EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.

Eignin er skráð 64,2 fm hjá HMS, þar af er 6,2 fm geymsla á jarðhæð, yfirbyggðar svalir eru ekki inni í skráðum fermetrum. Eigninni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu og þvottaaðstaða.

Nánari lýsing:

Forstofa með fatahengi, dúkur á gólfi.
Eldhús með hvítri innréttingu, bakaraofn, helluborði og gufugleypi. Tengi fyrir uppþvottavél og dúkur á gólfi.
Stofa og borðstofa í samliggjandi opnu rými, dúkur á gólfi og yfirbyggðar svalir hluti af stofunni. 
Svefnherbergi, rúmgott með góðum fataskápum, dúkur á gólfi.
Baðherbergi með hvít innréttingu, baðkar með sturtuaðstöðu, tengi fyrir þvottavél. 
Sérgeymsla á jarðhæð (6,2 fm).

Ný eldvarnarhurð hefur verið sett upp í íbúðinni. 

Hér er góð eigna á ferðinni sem hentar vel sem fyrstu kaup. Sjón er sögu ríkari, allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kötlufell 3

111 Reykjavík
49.500.000 kr.771 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1974TegundFjölbýlishúsStærð64,2 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF205263813Fasteignamat44.650.000 kr.Brunabótamat32.700.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑