fasteignasölur.is
Asparland 1
1 af 24

Um eignina

Fasteignasalan Heimaland kynnir Asparland 1 á Selfossi.
Snyrtilegt og vel frá gengið 141,5fm parhús í einu af vinsælustu hverfum Selfossbæjar. Klætt að utan með viðhaldsléttu báruáli og bárujárni á þaki, með stórri steyptri innkeyrslu.
Húsið er staðsett í göngufæri við nýjasta leikskóla bæjarins, Goðheima og grunnskólan Sunnulækjarskóla. Hér er um að ræða áhugaverða, snyrtilega og vel skipulagða eign sem vert er að skoða nánar. 

Nánari lýsing eignar:  
Forstofa er með harðparketi á gólfi og fataskáp. 
Alrými samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi.
Eldhús er með rúmgóðri innréttingu, þar sem gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél og spanhelluborði, harðparket er á gólfum.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með fataskápum og harðparketi á gólfum. 
Baðherbergi er rúmgott með flísum á gólfi, gólfsturtu, upphengdu WC og innréttingu. 
Þvottahúsið er vel skipulagt með þvottavél og þurkara í vinnuhæð, epoxy á gólfi. 
Bílskúr er rúmgóður með epoxy á gólfi.  

Húsið er skráð 141,5 fermetrar timburhús samkvæmt fasteignamati og bílskúr er 47,7 fermetrar þar af.
Lóðin er þökulögð með steyptum sólpalli, innkeyrsla er steypt.
 
Allar nánari upplýsingar veita:
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, snorri@heimaland.is


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is,  Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan Heimaland ehf.
89.900.000 kr.635 þ./m²
+18,3% á 4 árum
8. mars 2023Þinglýstur kaupsamningur
76.000.000 kr.537 þ./m²
+61,7% á 1 ári
12. janúar 2022Fyrsta sala
47.000.000 kr.332 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Asparland 1

800 Selfoss
89.900.000 kr.635 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2022TegundRað-/parhúsStærð141,5 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF25155755Fasteignamat89.950.000 kr.Brunabótamat68.250.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan Heimaland ehf.
HeimilisfangBrúarstræti 2, 2. hæð, 800 SelfossSími587-7707

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑