fasteignasölur.is
Dalbrekka 14
1 af 15

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 og Betri Stofan kynnir: Dalbrekku 14 - Glæsilega og bjarta rúmgóða 68,7 fm 2ja herbergja íbúð á 3.hæð í lyftuhúsi ásamt stæði í bílageymslu við Dalbrekku 14. Miðsvæðis í Kópavogi þar sem örstutt er í alla almenna þjónustu og samgönguæðar ásamt göngustígum og útivistarsvæðum. Stutt í Fossvoginn. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 64,7 fm auk 4 fm geymslu. Samtals 68,7 fm.

Laus strax.

Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali, í netfangið jason@betristofan.is eða í síma 7751515



Nánari lýsing.
Forstofa með harðparketi á gólfi og innbyggðum fataskáp ásamt skóskáp.
Baðherbergið er flísalagt með walk-in sturtu ásamt góðri innréttingu með ljúflokunum á skúffum og hvítum efri skáp, gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. upphengt salerni og handklæðaofn.
Svefnherbergið er rúmgott með góðum fataskáp á heilum vegg og glugga til austurs.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu með spanhelluborði. Innfeld upp´þvottavél og gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu, AEG helluborð og AEG ofn, harðparket á gólfi.
Stofan og eldhúsið flæða saman í opnu rými með stórum glugga til norðurs og austurs þar sem er einning útgengt út á rúmgóðar svalir, harðparket á gólfi.
Mynddyrasími er í anddyri og tengdur skjá í íbúð.

Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í bílageymslu.


Í sameign er 4,0 m2 sérgeymsla sem fylgir íbúðinni ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Gönguleiðir að stigahúsum eru með snjóbræðslu og hellulagðar. Aðrar gönguleiðir eru hellulagðar, steinsteyptar og malbikaðar. Stutt í Fossvoginnn og í Nauthólsvík.


Allar upplýsinar um eignina veitir: Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali, í netfangið jason@betristofan.is eða í síma 7751515


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Betri Stofan fasteignasala
65.900.000 kr.959 þ./m²
+10,8% á 3 árum
7. febrúar 2024Þinglýstur kaupsamningur
59.500.000 kr.866 þ./m²
+23,4% á 3 árum
22. júlí 2021Þinglýstur kaupsamningur
48.200.000 kr.702 þ./m²
+21,0% á 1 ári
31. ágúst 2020Fyrsta sala
39.850.000 kr.580 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Dalbrekka 14

200 Kópavogur
65.900.000 kr.959 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2019TegundFjölbýlishúsStærð68,7 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF23673103Fasteignamat66.350.000 kr.Brunabótamat52.180.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑