Um eignina
Þak á húsinu var endurnýjað 2025.
Nánari lýsing:
Komið inn í flísalagða forstofu með hita í gólfi.
Rúmgott svefnherbergi með parketi inn af forstofu.
Gestasalerni með flísum á gólfi og veggjum og gólfhita.
Þvottahús með innréttingu, flísar á gólfi, útgengt út á hellulagða verönd og út í garð, inngangur er í bílskúr frá verönd. Lítil geymsla er inn af þvottahúsi
Úr forstofugangi er gengið inn í hol og setustofu, þar er stór fataskápur, parket á gólfi.
Eldhús með ágætri eldri innréttingu, eldavél, tengi fyrir uppþvottavél, flísar á gólfi.
Stór og björt stofa og borðstofa með parketi á gólfi.
Garðskáli var byggður við húsið í kringum 1990 og er um 20 m² að stærð, þar er útgangur út í garð.
Árið 2021 var garðskálinn endurnýjaður og breytt í rúmgott svefnherbergi og litla setustofu.
Svefnálmugangur með parketi. Tvö minni svefnherbergi með parketi á gólfum.
Rúmgott hjónaherbergi með parketi og stórum nýlegum fataskáp.
Baðherbergi endurnýjað 2018, flísar á gólfi og veggjum, góð aðgengileg sturta, hvít innrétting og skápur, handklæðaofn og hiti í gólfi.
Bílskúr skráður 26,4 m² að stærð, steypt gólf, hiti og vatn, ágæt bílskúrshurð, inngönguhurð að aftanverðu.
Ath. Ekki er gert ráð fyrir að kofi í garðinum fylgi með í sölu eignar.
Framkvæmdasaga: Þak á húsi og bílskúr var endurnýjað 2025.
Frárennslislagnir endurnýjaðar 2018. Baðherbergi endurnýjað 2018.
Garðskáli endurnýjaður og breytt um 2021.
Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.
Bakkavegur 15
Staðsetning
Allar 31 myndir
Upp ↑





























