Um eignina
PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.
Perla Investments kynnir:Vönduð 2 svefnherbergja íbúð með garði
Vönduð 65,67 m2 íbúð með 2 svefnherbergjum bæði með innbyggðum skápum. Tvö baðherbergi, verönd og sér aflokaður garður með bílastæði innan lóðar. Eignin er staðsett inni í nýjum glæsilegum íbúðarkjarna en þar er að finna 2 sundlaugar, græn svæði og leiksvæði fyrir börn, hverfið sem þessi kjarni er staðsettur í er aflokað með sólarhrings öryggisgæslu.
Þetta hverfi er við hinn glæsilega 18 holu Vistabella Golfvöll og er svæðið þar í kring sannkölluð paradís þar sem öll nauðsinleg þjónusta er innan seilingar, en þar er að finna apótek, matvöruverslanir, veitingahús og bari. Einnig er næga afþreyingu að finna á svæðinu, aðgangur að paddle tennisvöllum og bocce völlum stendur íbúum einnig til boða sem og golfkennsla fyrir þá sem vilja.
Erum með mikið úrval annarra eigna til sölu í þessu magnaða hverfi.
Gæði eignarinnar, staðsetning og nálægð við alla þjónustu gera eignina þína að hinum fullkomna áfangastað hvort sem er til skammtíma eða langtíma dvalar.
Auk allrar þeirra þjónustu sem Vistabella Golf bíður uppá er stutt að fara til að bæta við flóruna en Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdri heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman.
Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, hvort sem þú villt spila heimavöllinn þinn Vistabella Golf, eða reyna við aðra velli í nágrenninu, en 8 átján holu vellir eru í innan við 20 mínútna fjarlægð að heiman. Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.
Endilega hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um þessa eign.
Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á https://www.perlainvest.com/ic/soluskra/costa-blanca-su-ur/vistabella-golf/vondu-2-svefnherbergja-ibu-me-gar-i-360.html
Ref: A332
Fylgdu okkur á Facebook -www.facebook.com/Perlainvest
Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com . Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.
Bjóðum einnig uppá leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/
Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com
Perla Inv. - Vönduð 2 svefnherbergja íbúð með garði
Allar 51 myndir
Upp ↑

















































