fasteignasölur.is
NESBAKKI 17 íbúð 301
1 af 25

Um eignina

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu NESBAKKI 17 ÍBÚÐ 301, 740 Neskaupstaður.
Fjögurra herbergja íbúð á efstu hæð í fjölbýlishúsi. Húsið stendur við lítinn botnlanga í grónu hverfi á Neskaupstað. 
Skipulag eignar:
 Anddyri, eldhús, stofa og borðstofa, tvö svefnherbergi,  baðherbergi og gangur.
Í sameign: Sér geymsla, vagna- og hjólageymsla. 

Nánari lýsing: 
Anddyri, fjórfaldur fataskápur frá IKEA, greinatafla.
Eldhús, nýleg Brúnás innrétting, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, borðkrókur (hilla og vínrekki í eldhúsi fylgja ekki).  
Stofa og borðstofa, skápar og hillur fylgja ekki, útgengt er út á suður svalir frá stofu. Gerfigras á svalargólfi.
Herbergi I, hjónaherbergi, þrefaldur fataskápur frá IKEA.
Herbergi II, án fataskáps. Voru upprunalega tvö svefnherbergi. 
Baðherbergi er upprunalegt, flísalagt í hólf og gólf, baðkar, salerni og vaskinnréting (máluð), tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Gólfefni í alrými, forstofu, herbergjum og eldhúsi er harðparket sem flæðir inn í öll rými. 
Í sameign er sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla og inngangur/anddyri.
Í geymslu er málað gólf, veggfastar hillur (fylgja).

PVC gluggar eru í öllum rýmum utan stofu, svalargluggar, þar eru timburgluggar. 
Nýjar hurðar frá sameign inn í íbúðir í öllum stigaganginum.
Inni í íbúðinni, þá er búið að endurnýja gólfefni, hurðar og eldhúsinnréttingu. 

Húsið Nesbakki 13 - 17 er þriggja hæða hús með þremur stigahúsum.
Húsið er steinsteypt byggt árið 1979, gaflar hússins eru klæddir. Sex íbúðir eru í hverjum stigagangi, tvær íbúðir eru á hverri hæð. 
Þak er risþak klætt járni, þak eignarinnar hefur verið endurnýjað ásamt þakrennum og þakköntum. 
Lóð er gróin, sameiginleg, bílastæðalóð framan við húsið er mallbikuð. 
Lóðin er 2.875,0 m² leigulóð, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 26. júlí 1978, skjal nr. 428-N-0H1009/1978. 
Lega og takmörk lóðar samkvæmt lóðarleigusamning, leigjendur norðan við lóðina megi ganga um merkt svæði og nýta til sinna nota,
sjá nánar lóðaleigusamning. 

Tvö húsfélög eru starfandi í heildarhúsinu Húsfélagið Nesbakki 13-17, sjá nánar í söluyfirliti. 

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 216-9540. Nesbakki 17, Fjarðabyggð.

Stærð: Íbúð 92.4 m².
Brunabótamat: 45.900.000 kr.
Fasteignamat: 31.400.000 kr. 
Byggingarár: 1980.
Byggingarefni: Steypa.
Eignarhald:
03 0 - Séreign. Rými 03 X Sameign allra 10.6 Brúttó m².
03 2 - Séreign. Rými 03.0105 Geymsla 7 Brúttó m². 03.0301 Íbúð á hæð 85.4 Brúttó m²​​​​​​.

 


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Drífa Einarsdóttir, hefur lokið námi til fasteignasala - drifa@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

NESBAKKI 17 íbúð 301

740 Neskaupstaður
41.900.000 kr.453 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1980TegundFjölbýlishúsStærð92,4 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF21695402Fasteignamat31.400.000 kr.Brunabótamat45.900.000 kr.
Skráð hjá
Byr fasteignasala
HeimilisfangMiðvangur 2-4, 700 EgilsstaðirSími471-2858

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑