Um eignina
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasali í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is
Eignin skiptist í stigahús, hol, 2 samliggjand stofur, eldhús, baðherbergi, 2 svefnherbergi, geymsluloft yfir allri íbúðinni, sérgeymslu í kjallara og sameiginlegri þvottaaðstöðu með 1. hæðinni í kjallara.
Nýlega er búið endurnýja járn og pappa á þaki. Þá hafa brunn og fráveitutengingar út í götu verið endurnýjaðar. Árið 2012 voru skólplagnir endurnýjaðar, nýjar drenlagnir lagðar, rafmagnstafla endurnýjuð fyrir húsið og færð í sameign ásamt nýjum inntökum fyrir heitt og kalt vatn í húsið. Eldvarnarhurðir hafa verið endurnýjaðar á milli brunahólfa (íbúða og sameignar). Þá var garður alveg endurnýjaður 2020. Eldhús og baðherbergi hafa verið endurnýjuð í íbúðinni, teiknuð og hönnuð af Teiknistofunni Tröð. Baðherbergi endurnýjað og teiknað af A2F arkitektum.
ENDURNÝJUN/BREYTINGAR GERÐAR Á SÍÐUSTU ÁRUM:
Sameign:
2023:
Þakjárn og pappi endurnýjað.
2023:
Gerður nýr brunnur og lagnir endurnýjaðar út í götu.
2020:
- Eldvarnarhurðir settir í á milli brunahólfa (íbúða og sameignar)
- Garður alveg endurnýjaður, garður hækkaður með nýrri mold og þökum (norðan og sunnan megin) verönd og stígur sunnan megin í garði hellulagður
- Nýir gluggar í stigahúsi í kjallara
- Þakkantur lagaður
- Endurnýjun brunns og fráveitutengingar út í götu (hús 19-21)
2018:
- Útitröppur við aðalinngang endurnýjaðar, flotaðar
2017:
- Nýr handlisti settur upp við útitröppur
2012:
- Endurnýjun skólplagna
- Nýjar drenlagnir
- Rafmagnstafla endurnýjuð fyrir húsið og færð í sameign
- Ný inntök, ný tenging fyrir heitt og kalt vatn
- Ný þvottaaðstaða, hver íbúð með sérgreini í rafmagnstöflu
Íbúð:
Endurnýjun/Breytingar undanfarinna ára:
2020:
- Baðherbergi endurnýjað (nýjar flísar, upphengt klósett, ný blöndunartæki og sturtugler), gólfhiti að hluta til á gólfi og handklæðaofn nýr
- Gluggar málaðir utanhúss
- Ný sérgeymsla í sameign
2019:
- Nýr ofn og lagnir að hluta endurnýjaðar í svefnherbergi
- Lagt fyrir jósleiðaratengingu
2018:
- Nýtt gler sett í glugga í stigahúsi
2017:
- Nýr innbyggður fataskápur í barnaherbergi
- Borðstofa lokuð af og breytt í herbergi, ný hurð sett í
- Garðskúr settur upp og málaður
- Rafmagnstenging fyrir rafmagnsbíl lögð út í garðskúr
2015:
- Nýtt gler í glugga í svefnherbergi
2002:
- Innréttingar endurnýjaðar í eldhúsi, í stigahúsi (fatahengi) og á gangi (stórir fataskápar) af Teiknistofunni Tröð.
Eignin er íbúð 0201 á 2.hæð ; birt stærð 102,6 fm, ásamt geymslu 0003; birt stærð 3,3 fm, stigahúsi1002; birt stærð 3,0 fm, þakrými 0301; botnflötur 108,9 fm og svalir 0202; brúttóflötur 3,8 fm.
Nánari lýsing eignarinnar:
Stigahús: Gengið inn í stigahús um sérinngang, dökkur línoleum dúkur á gólfi. Pallur í stigahúsi nýttur sem forstofa.
Hol: Komið inní hol/gang úr stigahúsi. Tengir öll rými íbúðar. Innbyggður skápur við enda hols/gangs. Í lofti í holi er hleri með stiga upp á geymsluloft sem er yfir allri íbúðinni.
Stofa: Rúmgóð og björt með fallegum stórum gluggum til austurs og suðurs. Opin við borðstofu.
Borðstofa: Rúmgóð og opin við stofu. Útgengt út á svalir til suðurs.
Eldhús: Endurnýjað fyrir um 10 árum. Teiknað og hannað af Sigríði Magnúsdóttur og Hans-Olav arkitektum hjá teiknistofunni Tröð. Mjög rúmgott, ljós innréttingu með góðu skápaplássi og viðarplötu á elhúsbekk. Smeg ofn og gashelluborð ásamt innbyggðri uppþvottavél.
Herbergi I: Rúmgott með góðu skápaplássi.
Herbergi II: Rúmgott, innbyggðir fataskápar.
Baðherbergi: Uppgert fyrir um 6 árum. Fallegar munstraðar flísar á gólfi og sturtuvegg, hvítar flísar á veggjum frá flísabúðinni. Sturta á upphækkuðum botni með gleri, baðkar innaf sturtu.
Sérgeymsla: Geymsla í kjallara, birt stærð 3,3 fm. Geymsluloft yfir allri íbúðinni.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús með 1.hæð.
Garður: Garður alveg endurnýjaður fyrir um 7 árum. Garður hækkaður með nýrri mold og þökum.
Geymsluskúr: Á baklóð hjá bílastæði. Rafmagnstenging fyrir rafmagnsbíl lögð út í garðskúr.
Falleg og vel skipulögð 4 herbergja íbúð á vinsælum stað í Hlíðunum í Reykjavík. Með fjölbreytta þjónustu, skóla á öllum stigum, íþróttasvæði Vals, falleg útivistarsvæði og miðbæ Reykjavíkur allt í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Verðsaga
2 þinglýstir kaupsamningarHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Barmahlíð 21
Staðsetning
Allar 38 myndir
Upp ↑




































