fasteignasölur.is
Ásholt 2
Opið hús 15. sept. kl. 17:00–17:30
1 af 88

Um eignina

LANDMARK kynnir:  Einstök íbúð á 10. og efstu hæð við Ásholt 2 í Reykjavík.  Eignin er 3ja herbergja, 109,8 fm og er eina íbúðin á hæðinni - 2 bílastæði í bílageymslu fylgja, sem eru hlið við hlið. Húsvarsla er í húsinu. Frábær staðsetning í miðbæ Reykjavíkur, þaðan sem aðeins göngufæri er í lifandi mannlíf miðbæjarins og allrar helstu þjónustu.

Úr lyftunni er komið inn í bjartan og teppalagðan gang með vestursvölum.  Einstakt útsýni yfir vesturhluta Reykjavíkur.

Forstofa og hol er flísalagt með fataskáp.
Eldhúsið er með ljósri viðarinnréttingu, flísum á gólfi og glæsilegu útsýni til suðvesturs.
Stofan og borðstofan eru í opnu og björtu rými með glæsilegu útsýni og útgengi út á yfirbyggðar suður / suðvestur svalir.
Baðherbergið var endurnýjað 2023-2024 og er flísalagt með fallegri innréttingu með steinvaski og borði, steyptri sturtu með glervegg, handklæðaofni og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergin eru tvö með flísum á gólfi og fataskáp í hjónaherbergi.

Í sameign á jarðhæð er sérgeymsla íbúðar (6,9 fm) en hún er inn af öðru bílastæðinu í bílageymslu, mjög gott aðgengi.  Hleðslustöð fylgir.  Þvottaaðstaða er í bílageymslu.
Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi er í sameign á jarðhæð og önnur sameiginleg rými eins og hjólageymsla.

Sameiginlegur afgirtur garður er við húsið með leiktækjum fyrir krakka.  Árið 2025 var þak endurbætt og nýlega var skipt um gler í allri íbúðinni.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is
------------------------------------------------------------------------------------


 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
113.500.000 kr.1034 þ./m²
+74,6% á 4 árum
13. október 2022Þinglýstur kaupsamningur
65.000.000 kr.592 þ./m²
+30,0% á 6 árum
16. febrúar 2017Fyrsta sala
50.000.000 kr.455 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Ásholt 2

105 Reykjavík
113.500.000 kr.1.034 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1990TegundFjölbýlishúsStærð109,8 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF20106062Fasteignamat103.850.000 kr.Brunabótamat73.260.000 kr.
Skráð hjá
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
HeimilisfangHlíðasmári 2, 6. hæð, 201 KópavogurSími512-4900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 88 myndir

Upp ↑