fasteignasölur.is
Njarðarnes 6-103
1 af 11

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is

Njarðarnes 6-103 - snyrtilegt og rúmgott iðnaðarbil með góðri lofthæð og óskráðu millilofti - skráð stærð 72,5 m² 

Eignin skiptist í opið rými, snyrtingu, milliloft með opnu rými sem og geymslu.

Nánari lýsing:
Aðalrýmið er rúmgott og bjart með góðri lofthæð, flísum á gólfi og stórri rafknúinni innkeyrsluhurð með gluggum. Gönguhurð er við hlið innkeyrsluhurðar og opnanlegur gluggi er fyrir ofan hana.
Snyrting er á jarðhæð með salerni og handlaug.
Milliloft er yfir hluta rýmisins og nýtist vel sem skrifstofu-, vinnu- eða geymsluaðstaða. Þar er parket á gólfi og þakgluggi sem gefa góða birtu.
Geymsluherbergi er á millilofti með parketi á gólfi.

Annað:
- Milliloftið er óskráð og telur því ekki inn í heildar fermetra eignarinnar
- Eignin er byggð 2006
- Rafknúin innkeyrsluhurð sem og gönguhurð
- Góð lofthæð er í rýminu

Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Njarðarnes 6-103

603 Akureyri (utan Glerár)
36.000.000 kr.497 þ./m²
Atvinnuhúsnæði1 bað
Byggingarár2006TegundAtvinnuhúsnæðiStærð72,5 m²Herbergi2InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22844763Fasteignamat23.850.000 kr.Brunabótamat27.750.000 kr.
Skráð hjá
Hvammur Fasteignasala
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 11 myndir

Upp ↑