fasteignasölur.is
Egilssel 9
1 af 18

Um eignina

Íbúðin er laus til afhendingar 1. september 2026. LÆKKAÐ VERÐ Í BOÐI NÆSTU VIKURNAR. 

Mjög flott íbúð með fjórum svefnherbergjum og innbyggðum 34,1 m² bílskúr í raðhúsi við Egilssel á Egilsstöðum. 
Seljandi er tilbúinn að skoða skipti á minni/ódýrari eign á Egilsstöðum eða höfuðborgarsvæðinu.

Íbúðin er á tveimur hæðum og er gengið af bílastæði inn á efri hæð. Þar eru stofa og eldhús í nokkuð opnu rými með parket á gólfi og upptekið loft. Útgengt úr stofu á stórar suðursvalir. Á efri hæð er mjög rúmgott svefnherbergi með parket á gólfi, herbergið er nokkuð stórt og getur vel nýst sem sjónvarpshol. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með parketflísum á gólfi. Á baðherbergi er sturta og handklæðaofn. Forstofa er flísalögð og úr forstofu er innangengt í flísalagðan bílskúr. Yfir bílskúr og hluta af efri hæð er gott geymsluloft sem búið er að klæða með timbri.
Á neðri hæð eru þrjú svefnherbergi, öll með parket á gólfi. Inn af hjónaherbergi er rúmgott fataherbergi. Baðherbergi neðri hæðar er flísalagt í hólf og gólf, þar er bæði rúmgóð sturta og baðkar sem og handklæðaofn. Þvottahús er flísalagt en parket á holi. Úr holi er útgengt á timburverönd í garði. 
Vel skipulögð og flott eign, rétt við útivistarparadísina í Selskógi. 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · INNI fasteignasala
83.800.000 kr.450 þ./m²
+213,9% á 12 árum
19. mars 2014Fyrsta sala
26.700.000 kr.143 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Egilssel 9

700 Egilsstaðir
83.800.000 kr.450 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2014TegundRað-/parhúsStærð186,1 m²Herbergi5InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF23053173Fasteignamat81.050.000 kr.Brunabótamat98.850.000 kr.
Skráð hjá
INNI fasteignasala
HeimilisfangFagradalsbraut 11, 700, EgilsstaðirSími580-7905

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 18 myndir

Upp ↑