fasteignasölur.is
Reykjabyggð 47
1 af 31

Um eignina

FALLEGT EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ - FJÖGUR SVEFNHERBERGI - TVÖ BAÐHERBERGI - AUKIN LOFTHÆÐ - ARINN - BÍLSKÚR 

Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s:662-6163) kynnir vel skipulagt 169,2fm einbýlishús á einni hæð auk 36 fm bílskúrs, samtals 205,2 fm við Reykjabyggð í Mosfellsbæ. Aukin lofthæð. Arinn í stofu. Fjögur svefnherbergi og möguleiki á því fimmta. Eignin samanstendur af alrými (stofa/borðstofa), eldhúsi, fjórum ágætum svefnherbergjum, sjónvarps herbergi, baðherbergi, gesta salerni, geymslu, þvottahúsi og rúmgóðum bílskúr. Fasteignamat 2027 samkv HMS 144.450.000kr.

Nánari lýsing: 
Komið er inn í anddyri með svörtum náttúru flísum, fatahengi, hiti í gólfi.
Gestasalerni flísalagt í hólf og gólf, innrétting, upphengt wc, sturtuklefi.
Björt og falleg stofa/borðstofa með uppteknum loftum, burðar bitar fá að njóta sín, fallegur arin, útgengt úr borðstofu á góðan sólpall.
Eldhúsið er opið við stofu með u laga ljósri innréttingu með góðu vinnuplássi, háfur, tvöfaldur ísskápur, niðurtekinn ljósastokkur, flísar á gólfi. 
Svefnherbergin eru fjögur, öll þeirra með stórum og góðum fataskápum. Möguleiki er að bæta fimmta herberginu við við enda gangs þar sem í dag er sjónvarpsrými.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, viðarlituð innrétting, handklæðaskápur, stór innbyggður sturtuklefi, gluggi.
Rúmgott þvottahús flísalagt í hólf og gólf, hvít innrétting, útgengt að framanverðu. 
Bílskúrinn er 36fm, geymslulofti yfir hluta hans. Rúmgott hellulagt bílaplan með hitalögn undir
Geymsla með hillum og geymsluloft yfir herbergjagangi. útgengt á tvo vegu úr herbergisgangi.
Sólpallur sem er að mestu aflokaður snýr mót suð-vestri, útgengt á hann úr þremur mismunandi rýmum hússins.

Endurbætur samkvæmt seljendum:
2016 Fataskápar i barnaherbergi. Þriggja fasa rafmgn, hleðslustöðvar inn í bílskúr
2017 Spanhella og nýr ofn í eldhúsi
2018 Sérsniðnar gardínur í alla glugga, myrkvunargardínur í mörgum gluggum
2020 Stétt og ruslatunnuskýli klárað, settir upp ál matjurtagarðar
2021 Gólf á háalofti klætt alveg út í enda og stigi settur upp, milliloft i bílskúr stækkað.
2022 & 2024 Gluggar, skipt um gler og gluggar lagaðir og málaðir.
2023 Arinn gerður nothæfur, vifta á strompi og gler í arinn
2024 Þakkkantur málaður

Húsið er vel staðsett í botnlanga við lokaða götu í rólegu og barnvænu hverfi. Stutt er í fallegar og friðsælar gönguleiðir, í Álafosskvos og við Reykjalund. Leikskóli og grunnskóli eru innan hverfisins, stutt er í framhaldsskóla og ekki langt í íþróttasvæðið við Varmá. Stutt í alla verslun og þjónustu, þmt Reykjabúið sem selur egg og alifugla afurðir.

Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is. 
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
159.500.000 kr.777 þ./m²
+175,0% á 10 árum
20. apríl 2016Fyrsta sala
58.000.000 kr.283 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Reykjabyggð 47

270 Mosfellsbær
159.500.000 kr.777 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1987TegundEinbýlishúsStærð205,2 m²Herbergi5InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20842714Fasteignamat136.400.000 kr.Brunabótamat118.050.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑