fasteignasölur.is
Réttarholt 6
1 af 36

Um eignina

Domusnova Borgarnesi og Sjöfn Hilmarsdóttir lögg.fasteignasali kynna: Réttarholt 6, 310 Borgarnes. Fjölskylduvænt, fimm herbergja 204,8 fm. einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr. Húsið er einstaklega rúmgott og vel skipulagt. Skjólsamur garður með timburveröld. Eignin hefur verið endurnýjuð talsvert á undanförnum árum. 
Fyrirhugað fasteignamat 2027 er kr. 86.600.000.-

** BÓKIÐ SKOÐUN **  Hægt að skoða með skömmum fyrirvara
Sjöfn Hilmarsdóttir, lgf. // s. 691-4591 // sjofn@domusnova.is

Réttarholt 6 er 204,8 fm. steypt einbýlishús á einni hæð að meðtöldum 54,4 fm. stakstæðum bílskúr (2004). Húsið skiptist í anddyri, gestasalerni, eldhús, stofu, borðstofu, þvottahús, fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Upptekið loft í stofu og borðstofu. Tvöfaldur bílskúr með inngangshurð á móts við aðalinngang hússins. 

Nánari lýsing:
Anddyri: Gólfhiti. Flísar á gólfi. 
Gestasaleri: Snyrtileg innrétting. Vegghengt salerni. Gólfhiti. Flísar á gólfi.
Stofa/hol: Rúmgott og bjart rými. Arinn. Parket á gólfi.
Borðstofa: Útgegnt á timburverönd. Parket á gólfi.
Eldhús: Hvít innrétting með viðarborðplötu. Bakaraofn í vinnuhæð. Borðkrókur. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Útgengt í garð. Gólfhiti. Tengi fyrir heitan pott. Flísar á gólfi.
Geymsla/búr: Inn af þvottahúsi. Hillur. málað gólf.
Baðherbergi: Hvít innrétting. Vegghengt salerni. Flísalögð sturta. Fibo baðplötur á veggjum. Flísar á gólfi.
Gangur: Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Fjögur svefnherbergi. Parket á gólfi.

Bílskúr: Stakstæður 54,4 fm. bílskúr frá 2004 með tveimur bílskúrshurðum og inngangshurð á hliðinni. Stúkað af geymslurými. Hiti og rafmagn. Steypt gólf.
Lóðin: Snyrtileg 770 fm. lóð, malarplan fyrir framan bílskúr og steypt stétt að aðalinngangi, stór timburveröld með skjólvegg fyrir framan hús og grasflötur fyrir aftan og meðfram húsi. Snúra í bakgarði.

Hér er fallegt einbýlishús sem hefur fengið gott viðhald og margt verið endurnýjað að innan sem og utan, m.a. skipt um innréttingar og endurnýjað eldhús, baðherbergi, gestasalerni og þvottahús, innihurðar og gólfefni, gólfhiti settur í anddyri, gestasalerni, baðherbergi og þvotthús. Nýlega hafa vatnsinntök, hluti ofna og ofnalagna verið endurnýjað. Að utan hefur húsið verið múrviðgert og málað. Skipt hefur verið um nokkur gler í gluggum. Áhugasömum er bent á að senda á netfangið sjofn@domusnova.is og fá söluyfirlit eignar sent. 

Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning 

Nánari upplýsingar og/eða bóka skoðun:
Sjöfn Hilmarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.691 4591 / sjofn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Domusnova fasteignasala
87.500.000 kr.427 þ./m²
+250,0% á 20 árum
28. nóvember 2006Fyrsta sala
25.000.000 kr.122 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Réttarholt 6

310 Borgarnes
87.500.000 kr.427 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1980TegundEinbýlishúsStærð204,8 m²Herbergi6InngangurMargir inngangarBílskúrFasteignanúmerF21116572Fasteignamat83.050.000 kr.Brunabótamat106.100.000 kr.
Skráð hjá
Domusnova fasteignasala
HeimilisfangHlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur, 201 KópavogiSími527-1717

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑