1 af 13
Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Til sölu eða leigu: heil húseign sem er 446 fm húnæði á þremur hæðum við Auðbrekku í Kópavogi. Um er að ræða nýtt staðsteypt hús. Húsið afhendist fullbúið að utan en í boði er allt frá fokheldu að innan að fullbúnu allt eftir þörfum kaupanda eða leigutaka. Frábær staðsetning og gott aðgengi.Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
Um er að ræða nánar tiltekið Auðbrekku 13, 200 Kópavogi, F2059430. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 446,0 fm. Eignin getur verið aðlöguð að þörfum kaupanda/leigjanda af seljanda eftir óskum.
NÁNARI LÝSING:
Góð aðkoma að miðhæð frá Auðbrekku. Tveir inngangar í opið alrými með ýmsa möguleika. Góðir gluggar eru í allar áttir. Stórt útisvæði er austan og sunnan miðhæðar. Gengið er á milli hæða um steinsteyptan stiga á efri og neðri hæðina. Gert er ráð fyrir lyftu í húsinu.
Neðri hæð er með gluggum á norður og vesturhlið. Gott útisvæði er norðan og vestan megin neðri hæðar. Efri hæð er með góðum gluggum í allar áttir og er opið úr efri hæð í sal miðhæðar. Góðar svalir eru í norð-vestur. Góð lofthæð er í húsinu. Húsið er í dag fullbúið að utan en fokhelt að innan en lóðinni verður skilað fullbúinni.
Útveggir eru staðsteyptir og einangraðir að utanverðu með 100mm steinullarplötum. Utan á einangrun er slétt plötuklæðning, dökkgrá að lit. frágangur útveggja að innan er með þeim hætti að þeir eru holufylltir og pússaðir undir málningu. Gluggar og hurðir eru almennt ál/tré gluggar, útihurðir eru álhurðir nema brunakokandi hurðir í kjallara sem að hluta til eru stálhurðir. Innveggir umhverfis blautkjarna eru gipsplötuveggir klæddir með rakavörðu gifsi. Aðrir eru hefðbundnir gipsplötuveggir, 12-15 cm á þykkt. Allar klæðningar eru í brunaflokki1. Svalahandrið á svölum eru úr galvanhúðuðu stáli með samlímdu öryggisgleri. Húsið er einangrað og klætt að utan og gluggar eru ál/tré gluggar og er því húsið viðhaldslétt fyrir vikið.
Vsk-húsnæði.
Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Auðbrekka 13
200 Kópavogur
Tilboð
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár2025TegundAtvinnuhúsnæðiStærð446 m²FasteignanúmerF20594301Fasteignamat43.100.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 13 myndir
Upp ↑











