fasteignasölur.is
Vesturgata (byggingarlóð) 61
1 af 15

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala kynnir nýtt í einkasölu: Tvær samliggjandi byggingarlóðir við Vesturgötu 61 og Seljaveg 8 101 Rvk, lóðirnar eru eignarlóðir, samtals um 300 fm.

Nánari lýsing: 

Á lóðinni standa í dag tvö lítil sambyggð hús, steinbærinn Litlasel byggður 1889 og Jórunnarsel byggt 1881, tengibygging er á milli húsanna.
Mannvirkin eru friðuð vegna aldrus en eru illa á sig komin.
Litlasel er heimildt að endurbyggja / bæta sem íbúðarhús og stækka með viðbyggingu skv. útfærslu í samræmi við Minjastofnun Íslands.
Jórunarsel og tengibyggingu má taka niður og fjarlægja skv. Minjastofnun og endurgera.
Seljavegur 8 er 143,35 fm og Vesturgata 61 er 153,4 fm.
Lóðin er seld í núverandi ástandi og án teikninga -  kaupandi er hvattur til að kynna sér vel þinglýst skjöl og upplýsingar frá Reykjavíkurborg og Minjastofnun.  

Þetta er spennandi tækifæri á skemmtilegum stað þar sem að mikil uppbygging hefur átt sér stað allt í kring.
Allar nánari upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson fasteignasali í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Vesturgata (byggingarlóð) 61

101 Reykjavík
Tilboð
Einbýlishús
Byggingarár1902TegundEinbýlishúsStærð300 m²Herbergi2InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20006351Fasteignamat108.100.000 kr.Brunabótamat19.100.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑