fasteignasölur.is
Grundarstígur 2 - íbúð 102
1 af 24

Um eignina

Viltu fasteignir kynna íbúð á jarðhæð í virðulegu og fallegu húsi við Grundarstíg 2, 101 Reykjavík.

Eignin er í dag skráð 2ja herbergja 58,3m2 íbúð en er í dag nýtt sem 3ja herbergja.
Eignin er á áberandi stað á horni Grundarstígs og Spítalastígs og var upphaflega byggð sem verslunarrými. Hægt er að hafa tvo inngana í eignina. Eignin er björt með stóra glugga í tvær áttir.
Allskonar skemmtilegir möguleika til að nýta rýmið á mismunandi hátt þar sem allir innveggir eru léttir.

Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning - Hægt að sýna með stuttum fyrirvara flesta daga.

Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit og önnur sölugögn eignarinnar.

Íbúðin sjálf er 53,2 m2 á jarðhæð. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi og eldhús/stofu saman í alrými.
Geymsla í sameign er skráð 5,1 m2 og þar er líka sameiginlegt þvottahús (hver með sína vél)

Allir gluggar og gler í húsinu voru endurnýjað 2025 og einnig er nýlega búið að endurnýja hluta þakklæðningar.

Nánari lýsing:

Gengið er í forstofu beint frá götu, þaðan er gengið í önnur rýmið íbúðarinnar.
Eldhús: Í opnu rými sem tengist við stofuna. Nett innrétting frá IKEA og frístandandi nýleg eldavél
Stofa/Borðstofa: Eru samliggjandi í opnu og björtu rými með stórum gluggum,
Herbergi 1: Til hægri frá forstofu. Góður gluggi með björgunaropi.
Herbergi 2: Út frá stofu. Góður gluggi með björgunaropi.
Baðherbergi: Flísalagt gólf, sturtuklefi,innbyggt upphengt salerni og handklæðaofn.

Hér er á ferðinni frábært tækifæri til að kaupa eign á frábærum stað sem auðvelt er að laga eftir sínu höfði.
Hvort sem það er sem ein íbúð, tvær minni íbúðir eða fyrir einhverstlag verslun/þjónustu

Nánari upplýsingar veitir Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 eða heidrekur@viltu.is eða Viltu fasteignir í síma 583-5000 / hvad@viltu.is

Vakin er athygli á því að eigendur íbúðarinn eru tengdir starfsmanni Viltu fasteignasölu fjölskylduböndum.

Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun frá 995.000 kr. m.vsk
Allt innifalið.
Kynntu þér málið á Viltu.is

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Grundarstígur 2 - íbúð 102

101 Reykjavík
54.900.000 kr.942 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1928TegundFjölbýlishúsStærð58,3 m²Herbergi3InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF2006641Fasteignamat49.450.000 kr.Brunabótamat26.400.000 kr.
Skráð hjá
Viltu fasteignir
HeimilisfangBæjarlind 2, 201Sími583-5000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑