fasteignasölur.is
Perla Inv. - Sérhæð með þaksvölum í Los Alcázares
1 af 19

Um eignina

PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.

Perla Investments kynnir: Sérhæð með þaksvölum í Los Alcázares

Falleg sérhæð á efri hæð með þaksvölum í göngufæri við strönd í bænum Los Alcázares í Murcia héraði.

Húsið er 65,60 m2 með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, björtu og fallegu alrými sem er með opnu eldhúsi, gengið er út á 14m2 svalir sem snúa í átt að fallegum sameiginlegum garði sem einniheldur sundlaug og með flott svæði til að sóla sig í allt að 300 daga og á efstu hæð eru 58,40 m2 þaksvalir með æðislegu útsýni til sjávar. 

Los Alcázares  er mjög vinsæll meðal þeirra sem stunda sjóíþróttir en býður einnig upp á allskyns aðra afþreyingu sem og uppákomur allt árið um kring. Alla nauðsinlega þjónustu er að finna í bænum s.s. heilsugæslu, apótek og matvöruverslanir sem og ótal veitingastaði og bari.

Stutt er að fara á golfvöllinn frá Los Alcázares en í nokkurra mínútna fjarlægð er að finna nokkra af fallegustu golfvöllum Spánar, Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna göngufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum.

Þessi eign er frábærlega staðsett, hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.

Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa glæsilegu eign.

 

Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á - https://perlainvest.com/eign/2091/serhaed/nybygging/spann/alicante/los-alcazares/los-alcazares/

Ref: B757

Fylgdu okkur á Facebook -www.facebook.com/Perlainvest 

Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com .  Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.

Bjóðum einnig uppá á leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/

Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com 

Perla Inv. - Sérhæð með þaksvölum í Los Alcázares

1053 Spánn - Costa Blanca
53.100.000 kr.809 þ./m²
Hæð2 svefn · 2 bað
Byggingarár2025TegundHæðStærð65,6 m²Herbergi3FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangC.C. Los Dolses nº 142, Villamartin, Orihuela Cost, 03189Sími893-3911

Allar 19 myndir

Upp ↑