fasteignasölur.is
Möðruvallastræti 1 íbúð 201
1 af 36

Um eignina

EIGNAVER s. 460-6060

Möðruvallastræti 1 íbúð 201 Akureyri

Falleg 4ra herbergja hæð á frábærum stað á Brekkunni. 99,3 fm. Íbúðin er á efstu hæð í þríbýli, tvennar svalir og frábært útsýni. 

Mjög góð staðsetning:
Sundlaug Akureyrar, miðbærinn, grunn- og framhaldsskólar í göngufæri. 


Nánari lýsing;
Forstofa er sameiginleg með íbúð á jarðhæð en þaðan er gengið inn í forstofu íbúðar í séreign efri hæðar.
Þar eru flísar á gólfi og geymsla undir stiga, þar er lakkað gólf.
Gengið er upp parketlagða (plastparket) tröppur á pall/hol, þar er útgangur á svalir sem snúa til vesturs. 
Hol,  plastparket á gólfi, skápur.
Stofa, rúmgóð með plastparketi á gólfi
Borðstofa og eldhús eru í opnu rými, plastparketi á gólfi og gluggar til þriggja átta út stofu og eldhúsi.
Elshúsinnrétting er með góðu skápaplássi, bakaraofni í góðri vinnuhæð, spanhelluborð, pláss fyrir uppþvottavél. Gluggi til austurs með góðu útsýni yfir fjörðinn.
Baðherbergi er snyrtilegt með hvítri innréttingu og baðkari með sturtutækjum. Gluggi, lakkað gólf.
Svefnherbergin eru þrjú, plastparket á tveimur þeirra en flísar á herbergi sem er inn af þvottahúsi. Skápar eru í einu herbergi.
Þvottahús er innan íbúðar, þar eru flísar á gólfi og þaðan gengið út á norðursvalir.

Samkvæmt Fasteignamati ríkisins þá er eignin sögð byggð árið 1941 en samkvæmt eignaskiptayfirlýignu frá 1994 þá kemur fram að við húsið var byggt bílgeymsla og hæð ofaná hana árið 1947. Þriðja hæðin var byggð árið 1957 úr timbri með hallandi veggjum. þak er lagt valmaþak.  
Hluti íbúðarrýmis er undir 180 cm. og því er íbúðin í raun stærri en skráðir fermetrar segja til um.

Annað;
- Töluvert endurnýjuð eign
- Gólf nýlega steypt upp og lagður gólfhiti.
- Gler endurnýjað 2025 utan gler í vesturgluggum og gluggi norðurherbergi, sem er nýlegt.
- Blikkklæðning á þriðju hæð máluð 2025 ásamt viðarklæðningu og svalahurð.
- Plötur í skjólvegg á svölum endurnýjaðar 2025.
- Þakrennur endurnýjaðar og hitakapall settur 2020.
- Nýr þakpappi bræddur á þakið 2020.
- Rafmagn endurnýjað að mestu 2017.
- Glæsilegt útsýni.
- Frábær staðsetning rétt við Sundlaugina og í göngufæri við verslun og þjónustu.

Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu ehf

Nánari upplýsingar veita:
Begga           s: 845-0671    / begga@eignaver.is
Tryggvi          s: 862-7919   / tryggvi@eignaver.is
Arnar             s: 898-7011   / arnar@eignaver.is

 

Möðruvallastræti 1 íbúð 201

600 Akureyri
68.900.000 kr.694 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1941TegundFjölbýlishúsStærð99,3 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF21493751Fasteignamat47.000.000 kr.Brunabótamat49.300.000 kr.
Skráð hjá
Eignaver fasteignasala ehf.
HeimilisfangHafnarstræti 97 (Krónan), 600 AkureyriSími460-6060

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑