fasteignasölur.is
Stafafellsfjöll 43B
1 af 8

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir : 
Til sölu er lóð 43b á Víðum í Stafafellsfjöllum, rétt austan við Jökulsá í Lóni. Lóðin er í um 6 km fjarlægð frá þjóðvegi 1. Stafafellsfjöll er vinsælt útivistarsvæði í Lónssveit, 30 km austan við Höfn. Svæðið er kjarrivaxið, fjöllin er litrík að þar má finna margar góðar gönguleiðir, m.a. í Kollumúla. Stutt frá lóðinni eru fallegt gil, Hvannagil og snoturt lítið stöðuvatn, Vötnin, umkringt litskrúðugum fjöllum. Á lóðinni, sem er um 4300 fm samkvæmt deiliskipulaginu, er töluvert
birkikjarr. Einnig er lóð nr.43a til sölu sem liggur upp við þessa lóð.


Nánar um skipulag í Stafafellsfjöllum. Á skipulagssvæðinu eru skilgreindar alls 78 lóðir undir frístundarhús. Á hverri lóð er heimilt að byggja allt að 3 hús, sem fer þó eftir stærð lóða. Frístundarhús/aðalhús má vera allt að 120 fm og ekki minni en 30 fm. Aukahús/gestahús getur verið allt að 30fm. þó ekki stærra en helmingur af stærð aðalhúss. Geymsla getur verið allt að 25 fm. Á lóðum sem eru 6000 fm og stærri er leyfilegt byggingarmagn allt að 180fm en á minni
lóðum takmarkast það við nýtingarhlutfallið 0,03.  Vatnsöflun á svæðinu er á ábyrgð hvers lóðareiganda.

Allar frekari upplýsingar veitir Helgi Jónsson löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á helgi@fstorg.is

 

Stafafellsfjöll 43B

781 Höfn (Hornafjörður)(dreifbýli)
3.000.000 kr.
Jörð/Lóð
TegundJörð/LóðStærð0 m²FasteignanúmerF2367008Fasteignamat1.465.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan TORG
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 8 myndir

Upp ↑