fasteignasölur.is
Nónhamar 8
1 af 23

Um eignina

67,8 fm 2ja herbergja endaíbúð á 2. hæð í nýlegu lyftufjölbýli við Nónhamar 8, 221 Hafnarfirði.
Allir skráðir fermetrar eru innan íbúðar skv. HMS.

Nánari lýsing:
Anddyri með skápum. Geymsla innaf anddyri. Eldhús, stofa og borðstofa í rúmgóðu og björtu alrými með útg. á svalir. Eldhús með helluborði, ofni, innbyggðum ísskápi og uppþvottavél ásamt góðu vinnuborði. Hjónherbergi með skápum. Baðherbergi með upphengdu salerni, walk-in sturtu, handklæðaofni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Sameiginlega hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.

Frábær staðsetning í nýlegu hverfi, Hamranesi, í Hafnarfirði þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og fallega náttúru.

Nánari upplýsingar veitir Arnór Daði Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 777-0939 / arnor@as.is.

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala

www.as.is

Allar 23 myndir

Upp ↑