fasteignasölur.is
KELDUSKÓGAR 1-3 ÍBÚÐ 601
1 af 30

Um eignina

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu KELDUSKÓGAR 1-3 ÍBÚÐ 601, 700 Egilsstaðir. Fjögurra herbergja íbúð á sjöttu hæð í lyftuhúsi á Egilsstöðum. 
Stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði. 

Húsið er forsteypt byggt árið 2004. Eignin  skiptist í íbúð 100,8 m² og geymslu 7,9 m². samtals 108.7 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, gangur, eldhús, stofa, gangur, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Í sameign er sérgeymsla ásamt hjóla- og vagnageymslu og sorpgeymslu.

*** Íbúðin er laus frá 1. ágúst 2026 ***

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Nánari lýsing: 
Anddyri, fataskápur og fatahengi, innangengt er í eldhús annarsvegar og í þvottahús hinsvegar frá anddyri. 
Eldhús, Brúnás innrétting,  helluborð og ofn, vifta, gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Borðkrókur er innst í eldhúsi, innangengt er í stofu frá borðkrók. 
Stofa gluggar í tvær áttir, útgengt er úr stofu út á 8,6 m² svalir.
Gangur liggur við stofu að svefnherbergjum og baðherbergi. Vinnuaðstaða er innst á gangi.
Hjónaherbergi er með fataskápum.
Barnaherbergin eru tvö, bæði með fataskápum. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni, rúmgóð vask innrétting.
Þvottahús er innan íbúðar, vinnuborð, pláss fyrir tvær vélar.
Gólfefni: Parket er á alrými, gangi og svefnherbergjum. Flísar eru á, baðherbergi og þvottahúsi.
Sérgeymsla er í kjallara, málað gólf.
Í sameign er stigahús, lyfta, inntaksrými, hjóla- og vagnageymsla og sorpgeymsla.

Kelduskógar 1-3 er forsteypt sjö hæða fjölbýlishús auk kjallara, valmaþak.  Þrjár íbúðir eru á hverri hæð eða samtals 21 íbúð. Undir húsinu er niðurgrafinn kjallari með sérgeymslum íbúða og sameiginlegum geymslum. 
Á ytra byrði útveggjaeininga er dökk-grár mulningur, timbur/ál gluggar. Steypt stétt er við anddyri hússins, hiti er í stétt. Lyfta er í húsinu. 
Lóð er sameiginleg fullfrágengin. Bílastæði á lóðinni eru sameiginleg, við inngang eru tvö bilastæði merkt fyrir hreyfihamlaða. 
Lóðin er sameiginleg 7418,0 m² leigulóð í eigu Múlaþings. Lóðarleigusamningur til 50 ára frá 21. maí 2003. 

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |
 


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Drífa Einarsdóttir, hefur lokið námi til fasteignasala - drifa@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

KELDUSKÓGAR 1-3 ÍBÚÐ 601

700 Egilsstaðir
62.000.000 kr.570 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2004TegundFjölbýlishúsStærð108,7 m²Herbergi4LyftaFasteignanúmerF22650511Fasteignamat56.750.000 kr.Brunabótamat57.950.000 kr.
Skráð hjá
Byr fasteignasala
HeimilisfangMiðvangur 2-4, 700 EgilsstaðirSími471-2858

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑