fasteignasölur.is
Grásteinsmýri 2 íb 212
1 af 23

Um eignina

Háborg fasteignasala kynnir Grásteinsmýri 2, Garðabæ. Nýbyggingin er staðsteypt, einangruð að utan og klædd með ál- og bambus klæðningu. Góðar 2ja, 3ja 4ra og 5 herbergja íbúðir í litlu fjölbýli með lyftu. Útsýni er úr flestum íbúðum og timbur-verönd fylgir íbúðum á 1. hæð. Íbúðirnar afhendast án megin gólfefna en baðherbergi eru flísalögð að hluta. Næg bílastæði á lóð. Áætluð afhending íbúða er í apríl 2026.

Nánari lýsing á íbúð 212 4ra herbergja: Stærð 123,9 fm. Sérinngangur af svölum. Þegar komið er í forstofu eru góðir fataskápar. Barnaherbergi tvö eru rúmgóð og björt með góðum fataskápum. Hjónaherbergi er einnig rúmgott og bjart með góðum fataskápum og með útgengi út á svalir. Baðherbergi er með góðri snyrtiaðstöðu. Sér þvottahús með góðri vinnuaðstöðu. Alrými er mjög rúmgott og bjart með opið eldhús. Stofur eru rúmgóðar og bjartar. Úr alrými og stofu er útgengt á svalir 6,5 fm að stærð. Eigninni fylgir stæði í bílakjallara merkt B24 og geymsla að stærð 8,3 fm.

Nánari upplýsingar veita Katla Hanna Steed lögg. fasteignasali, í síma 822 1661 eða katla@haborg.is, Jórunn Skúladóttir lögg. fasteignasali, í síma 845-8958, eða tölvupóstur jorunn@haborg.is, Alexandra Eik Októsdóttir aðstoðamaður fasteignasala í síma 897-8277 eða á alexandra@haborg.is og Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða á kristin@haborg.is.


Nýjar, bjartar og vandaðar íbúðir með góðri lofthæð, þar sem náttúra, ró og nútímaleg hönnun mætast.
Innréttingar í íbúðum: AXIS innréttingar í litnum CashmereGrey. AEG innbyggð heimilistæki, ísskápur, uppþvottavél, helluborð og bakarofn. Baðherbergi eru flísalögð að hluta með 60×60 Patch Beige flísum (Ragno). Grohe blöndunartæki eða sambærileg. Egill Árnason hurðir, lamir og hurðabúnaður.
Sérmerkt bílastæði í bílageymslu fylgir hverri íbúð auk sérgeymslu í kjallara. Sameiginleg opin reiðhjóla- og vagnageymsla í inngarði á milli húsa.

Staðsetning og nærumhverfi: Frábær staðsetning, þar sem skóli, leikskóli, sundlaug og íþróttahús eru í göngufæri. Ekkert skutl og engar götur sem þarf að fara yfir. Rólegt og fallegt umhverfi. Frábær aðstaða fyrir fjölskyldufólk. Einnig eru frábær útivistasvæði við strandlengjuna. Hestamannfélagið Sóti og fallegar reiðleiðir eru á svæðinu.

ATH: kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það verður lagt á.
Aðeins 4 mínútna akstur frá ljósunum við Actavis.
Athugið að myndir í auglýsingum eru settar fram til viðmiðunar. Á þeim kunna að koma fyrir einstök atriði, búnaður eða frágangur sem falla ekki undir loka­útgáfu eða skilalýsingu fasteignarinnar.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. 
 

Grásteinsmýri 2 íb 212

225 Garðabær
110.900.000 kr.895 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð123,9 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrLyftaFasteignanúmerF253469128Fasteignamat7.140.000 kr.
Skráð hjá
Háborg fasteignasala
HeimilisfangGrensásvegur 1, 6. hæð, 108 ReykjavíkSími497-0031

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑