fasteignasölur.is
Brekkuholt 7a
1 af 59

Um eignina

ÁRBORGIR FASTEIGNASALA 4824800 kynnir í einkasölu:
Brekkuholt 7A Reykholti

Um er að ræða 213,8 fm parhús á fallegri útsýnislóð í nýlegu hverfi.  Íbúðin er 182,5 fm og sambyggður bílskúr 31,3 fm.
Húsið er á einni hæð og klætt að utan með viðhaldsléttri klæðningu og gluggar/hurðir eru ál/tré. 

Nánari lýsing:
Anddyri er með flísum á gólfi og stórum skáp.
Gangur er flísalagður sem liggur inn í alrými og herbergisgang.
Þrjú svefnherbergi eru við ganginn og eitt baðherbergi. Herbergin eru parketlögð með vönduðu harðparketi og loftin upptekin sem gefur þeim skemmtilegan svip.
Baðherbergið er með flísum á gólfum og veggjum. Upphengt salerni og innrétting með tveimur vöskum. Rúmgóð "walk in " sturta og frístandandi baðkar.
Stofa og eldhús eru í opnu rými og einstakt útsýni er út um stofugluggann.
Eldhús með stórri sérsmíðaðri innréttingu með quart stein, eyju og vönduðum snjallvænum heimilistækjum.
Stofan er mjög björt og rúmgóð og er rennihurð út á stóra timburverönd með glæsilegu útsýni. Á sólpalli er heitur pottur og dekk pallsins er rásaður viður. Í einu horni er svo geymsla.
Hjónasvítan er inn af stofu og er ca. 38 fm og í því er fataherbergi og baðherbergi. Einnig er rennihuð úr svítunni út á pall.
Inn af eldhúsi er gott þvottahús sem er flísalagt og með góðri innréttingu.

Upptekið loft er í öllu húsinu og innfelld ledlýsing er í flestum rýmum hússins sem hægt að stjórna úr símum og m.a. skipta um lit o.fl. 
Gólfhitakerfi er í húsinu með digital stýringum fyrir hvert rými.
Bílskúr er flísalagður, björt lýsing og rafstýrð innkeyrsluhurð, geysla innst í bílskúr. Næturlýsing er undir þakskeggi. Bílaplan er hellulagt með lokuðu snjóbræðslukerfi og sólpallur er einnig fyrir framan hús.  
Til hliðar við húsið er búið að jarðvegsskipta og þar er mjög gott pláss fyrir stóra bíla eða hjólhýsi/kerru. Köld geymsla er innan við stæðin.


Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga
arborgir@arborgir.is

 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Árborgir - Fasteignasala
115.500.000 kr.540 þ./m²
+20,3% á 2 árum
7. júní 2024Fyrsta sala
96.000.000 kr.449 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Brekkuholt 7a

806 Selfoss (dreifbýli)
115.500.000 kr.540 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2021TegundRað-/parhúsStærð213,8 m²Herbergi5InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF25131932Fasteignamat77.550.000 kr.Brunabótamat110.250.000 kr.
Skráð hjá
Árborgir - Fasteignasala
HeimilisfangAusturvegi 6, 800 SelfossSími482-4800

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 59 myndir

Upp ↑