fasteignasölur.is
Helgamagrastræti 21 - eh.
1 af 28

Um eignina

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala 

Helgamagrastræti 21 eh. 

Um er að ræða fjögurra herbergja efri hæð í tvíbýlishúsi með sér inngangi. Eignin er skráð samtals 109,4 fm. að stærð. 


Íbúðin skiptist í forstofu, gang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu. Innangengt er niður á neðri hæð og einnig um sér inngang framan við hús, þar eru rými sem tilheyra eigninni. Þvottahús/lagnarými og þrjár geymslur. Neðri hæðin er með afnotarétt af þvottahúsinu. 

Forstofa með flísum á gólfi.  
Svefnherbergin eru þrjú öll eru þau með límdúk á gólfi og eru faraskápar í tveimur þeirra. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggir að hluta, baðkar með sturtutækjum, opnanlegur gluggi og innrétting við vask. 
Eldhús er rúmgott með korkur á gólfi. gott skápapláss og borðkrókur. Bakaraofn í vinnuhæð og stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu. Innaf eldhúsi er lítið búr og einnig er innangengt úr eldhúsi og niður í þvottahús og geymslur. 
Stofan er björt með gluggum til tveggja átta, límdúkur á gólfi og útgengi út á svalir til suðurs úr stofu. 
Sér inngangur er í íbúðina og auka inngangur á jarðhæð inní í geymslur og þvottahús sem er svo einnig innangengt úr íbúð. 

Annað:
- Ljósleiðari 
- Stétt framan við hús hefur verið endurnýjuð
- Húsið múrviðgert og málað 2024
- Gluggar/gler að einhverjum hluta. 
- Ofnar og ofnalagnir 
- Skólp endurnýjað
- Rafmagnstafla og rafmagn að einhverjum hluta.
- Þak yfirfarið fyrir 10 + árum síðan


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Helgamagrastræti 21 - eh.

600 Akureyri
61.900.000 kr.566 þ./m²
Hæð3 svefn · 1 bað
Byggingarár1944TegundHæðStærð109,4 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF21472841Fasteignamat50.650.000 kr.Brunabótamat49.600.000 kr.
Skráð hjá
Byggð
HeimilisfangSkipagötu 16, 600 AkureyriSími464-9955

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑