fasteignasölur.is
Kerhraun C 82
1 af 41

Um eignina

Kerhraun C 82, Grímsnes-og Grafningshreppi.

Fasteignaland kynnir: Sumarhús í landi Kerhrauns í Grímsnes-og Grafningshreppi.  Um er ræða 64,1 fm sumarhús ásamt ca. 6 fm geymslu.  Á sólpalli er glerhýsi ca. 13 fm auk glerhýsi ca. 10 fm yfir heitum potti.  Á lóðinni er lítið dúkkuhús.  Lóðin er eignarlóð (endalóð) 5.034 fm og búið að planta talsvert af trjágróðri.  Varmadæla loft í loft er í þessu húsið auk þess eru rafmagnsofnar.  Varmaskiptir (gegnumsteymisbúnaður) sem nýttur er fyrir neysluna í húsinu og heitapottinn. Möguleiki er að taka inn hitaveitu en hún er við lóðarmörk. 

Lýsing á eign: Forstofa með flísum á gólfi og fatahengi. Tvö herbergi með parketi á gólfi, annað með góðu skápaplássi. Baðherbergi með flísum á gólfi, fallegri innréttingu og sturtuklefa. Stofa með parketi á gólfi, góðri lofthæð og útgengið út á suður sólpall. Eldhús með parketi á gólfi, fallegri viðarinnréttingu og vönduðum tækjum. 

Milliloft: Stórt milliloft, manngengt með parketi á gólfi og opnanlegu fagi. Undir súð er lítil geymsla

Stór sólpallur með girðingu og skjólgirðingu að hluta.

Lítið dúkkuhús er á lóðinni.

Glerhýsi 1: Nýtt sem sólstofa, stærð ca. 13 fm.

Glerhýsi 2:  Yfirbyggt yfir heitan pott, stærð ca. 10 fm.

Geymsla: Ca. 6 fm nýtt fyrir garðáhöld.

Tengi, hleðslustöð fyrir bíl.

Möguleiki er að fá hluta af innbúi með í kaupum á eigninni.

Þetta er falleg og vel um gengin eign á vinsælu svæði í Grímsnesi.
Lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið).

Upplýsingar gefa: 
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali, s. 898-0508, netfang: arni@fasteignaland.is
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali, s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is



 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignaland
47.000.000 kr.733 þ./m²
+16,0% á 3 árum
14. apríl 2023Fyrsta sala
40.500.000 kr.632 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Kerhraun C 82

805 Selfoss (dreifbýli)
47.000.000 kr.733 þ./m²
Sumarhús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2007TegundSumarhúsStærð64,1 m²Herbergi3FasteignanúmerF23042113Fasteignamat26.550.000 kr.Brunabótamat49.450.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignaland
HeimilisfangSkeifan 2, 108Sími599-6700

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 41 myndir

Upp ↑