fasteignasölur.is
Dalbraut 4
1 af 18

Um eignina

***Dalbraut 4, 300 Akranes***
SELD með fyrirvara.

 
Eignaland og Jens Magnús lgf. kynna í einkasölu Dalbraut 4 (302), 300 Akranesi. Nýleg og falleg tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð í þessu fimm hæða fjölbýlishúsi. Eignin er skráð 78,9 fm og þar af er geymsla 10,8 fm. Lyfta er í húsinu og stæði í upphitaðri bílageymslu fylgir þessari íbúð. Salur fyrir eldri borgara og tengda þjónustu er á fyrstu hæð ásamt því að stór sameignilegur garður fyrir íbúa er á þaki fyrstu hæðar. Geymslan er í kjallaranum ásamt sameignlegri hjól-og vagnageymslu. Loftræsting er í íbúðinni.

Nánari lýsing:

Forstofa: Parket á gólfi og fallegir fataskápar
Eldhús: Parket á gólfi með fallegri eikar og hvítri innréttingu og góðum tækjum. Útgangur út á stórar svalir með svalalokun.
Stofa/borðstofa: Björt og falleg stofa með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með fallegum eikar fataskápum, parket á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergi með fallegri eikarinnréttingu. Góð sturta. Flísalagt gólf og veggir.
Þvottahús: Flísalagt þvottahús með innréttingu.

Virkilega falleg íbúð á þessum vinsæla stað á Akranesi.

Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is

 
***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***
 
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Eignaland
64.900.000 kr.823 þ./m²
+64,7% á 6 árum
20. nóvember 2020Þinglýstur kaupsamningur
39.400.000 kr.499 þ./m²
+0,0% á 1 ári
20. nóvember 2019Fyrsta sala
39.400.000 kr.499 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Dalbraut 4

300 Akranes
64.900.000 kr.823 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2020TegundFjölbýlishúsStærð78,9 m²Herbergi2InngangurSérinngangurBílskúrLyftaFasteignanúmerF250545512Fasteignamat58.000.000 kr.Brunabótamat68.110.000 kr.
Skráð hjá
Eignaland
HeimilisfangHlíðarsmára 5, 2. hæð, 200 KópavogurSími547-3900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 18 myndir

Upp ↑