fasteignasölur.is
Miðtún 6
1 af 19

Um eignina

Mikið endurnýjað fimm herbergja einbýlishús á einni hæð við Miðtún á Seyðisfirði. Eldhús var endurnýjað fyrir þremur árum, innihurðir og flest gólfefni voru endurnýjuð fyrir fjórum árum, eitthvað lengra er síðan baðherbergi var endurnýjað sem og fleira, s.s. allir gluggar.
Húsið er klætt að utan með áli og á þaki er dúkur.
Húsið er í mjög góðu ástandi.

Í stofu og borðstofu er parket á gólfi og þaðan er útgengt á timburverönd í garði. Parket er einnig í eldhúsi, þar er glæsileg innrétting og góð tæki. Góður borðkrókur er í eldhúsi. Baðherbergi er flísalagt með fallegri innréttingu. Á baðherbergi er baðkar með sturtu í. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu, öll með parket á gólfi og fataskápur er í hjónaherbergi. Í forstofu eru flísar á gólfi og þar er nokkuð rúmgóður fataskápur. Inn af forstofu er þvottahús með máluðu gólfi en það nýtist líka vel sem geymsla.

Miðtún 6

710 Seyðisfjörður
TegundEinbýlishúsStærð123,8 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.1
48.500.000 kr.392 þ./m²
Byggingarár1966InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF2168625Fasteignamat32.150.000 kr.Brunabótamat63.300.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangFagradalsbraut 11, 700, EgilsstaðirSími580-7905

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑