fasteignasölur.is
Vatnsnesvegur 19
1 af 21

Um eignina

Ásberg fasteignasala kynnir;

Ásberg fasteignasala kynnir í einkasölu einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bílskúr við Vatnsnesveg 19, Keflavík, Reykjanesbæ.
 

168,8 fermetra, 4-5 herbergja einbýlishús í hjarta Keflavíkur á Vatnesvegi 19, eignin er með tveim baðherbergjum, bílskúr og góðum garði. Í göngufæri við verslun og þjónustu, grunn- og leikskóla.
 
Nánari lýsing;
Efri hæð:
Gengið er inn aðalinngang í anddyri með herbergi á vinstri hönd sem er í dag notað sem sjónvarpsrými. Útgengt er á svalir úr því og hægt væri að stúka það af til að búa til auka svefnherbergi. Frá miðrými er eldhús á hægri hönd með bakaraofni í vinnuhæð. Opið er á milli eldhús, borðstofu og stofu. Á hæðinni er stigi niður á neðri hæð ásamt baðherbergi með baðkari. Anddyri er flísalagt, baðherbergi með dúk og önnur rými með parketi og plastparketi.
 
Neðri hæð:
Gengið er inn um inngang inn í forstofu með kaldri geymslu á hægri hönd undir stiga. Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru á hæðinni, eitt með innbyggðum skápum. Baðherbergi og þvottahús er með flísum og sturtu. Úr miðrými er stigi upp í miðrými efri hæðar. Anddyri, miðrými og baðherbergi er flísalagt og svefnherbergi eru með plastparket.
 
Bílskúr:
Bílskúr er með rafmagns opnara á hurð (skipt um 2025). Nýtt þak er á skúrnum og hurð út í garð. Skúrinn er með kalt og heitt vatn og affalls ofna frá húsi sem renna þaðan út í upphitaða innkeyrslu. Gott geymslurými er í skúrnum og hægt að opna hann að aftan út á pall sem er bakvið skúrinn. Óupphitaður geymsluskúr er á lóðinni.
 
Baðherbergi og þvottahús var tekið í gegn 2022-2023, og þá var inntak fyrir heitt vatn endurnýjað og rafmagnstafla yfirfarin. Skipt var um glugga á neðri hæð 2025. Baðherbergi á efri hæð er komið til ára sinna og komin tími á að yfirfara og skipta um glugga á efri hæð í húsinu. Skipt var um þak á bílskúr 2024 ásamt því að húsþak var ryðhreinsað, menjað og málað.
 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Ásberg fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
 
Allar nánari upplýsingar um eignina eru veittar á skrifstofu Ásberg Hafnargötu 27, Reykjanesbæ eða í síma 421-1420
asberg@asberg.is, asberg.is

 
Jón Gunnarsson Lögg. fasteigna- og skipasali. S: 894-3837
Þórunn Einarsdóttir hefur lokið námi til fasteigna- fyrirtækja-og skipasali. S:  898-3837

 
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá.
Gjöld sem kaupandi þarf að huga að við kaup. Stimpilgjald vegna þinglýsingar kaupsamnings er 0,4-1,6% af fasteignamati hins keypta auk kr. 3.800.- fyrir þinglýsingu kaupsamnings.
Kaupandi tekur lán hjá bankastofnun / íbúðalánasjóði. Lántökugjald eru annars breytilegt eftir lánastofnunum en ávallt greiðast kr. 3.800.- fyrir þinglýsingu á hverju skjali.
Umsýslugjald fasteignasölunnar er kr. 59.900.- krónur m/ vsk sem greiðist við undirritun kaupsamnings.

 

Jón Gunnarsson Lgf  Fasteigna- og skipasali  Sími 894-3837
Þórunn Einarsdóttir Nám Fasteigna- fyrirtækja og skipasali Sími 898-3837
Jón Gunnar Jónsson  Nám Fasteigna- og skipasali Sími 849-3073 

Vantar allar eignir á skrá. Frítt sölumat.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan Ásberg
76.900.000 kr.456 þ./m²
+107,8% á 6 árum
5. nóvember 2020Fyrsta sala
37.000.000 kr.219 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Vatnsnesvegur 19

230 Reykjanesbær
76.900.000 kr.456 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár1942TegundEinbýlishúsStærð168,8 m²Herbergi5InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF20911209Fasteignamat70.900.000 kr.Brunabótamat72.200.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan Ásberg
HeimilisfangHafnargötu 27, 230 KeflavíkSími421-1420

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑