fasteignasölur.is
Vesturgata 2
1 af 15

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Vesturgata 2 - Til sölu hlýlegt og sjarmerandi hús á 259 m² leigulóð á Ólafsfirði.
Húsið var mikið endurnýjað fyrir 10 – 15 árum.
Á lóðinni er einnig heitur pottur með sjálfvirkri stýringu og 9 m² skúr, sem er tilbúin fyrir einangrun og hægt væri að nota sem gestahús.
Húsið er með skráð byggingarár 1945 og 42,5 m² að stærð auk svefn- og geymsluslofts.
Eignin getur hentað bæði sem heilsárshús, sumarhús eða til útleigu.


Húsið skiptist í forstofu, baðherbergi með þvottaaðstöðu, eldhús og stofu í opnu rými og eitt svefnherbergi. Úr stofu er farið upp á loft sem er tvískipt, annarsvegar geymsluloft og hinsvegar svefnloft.

Forstofa er með lökkuðu timburfjölum á gólfi.
Eldhús og stofa eru í opnu  rými. Þar er harðparket á gólfi og snyrtileg ljós eldhúsinnrétting með grárri bekkplötu. Lúga er í loftinu í stofunni þar sem farið er upp á svefnloft og geymsluloft. 
Baðharbergi er með dúk á gólfi og hluta veggja, innréttingu, wc, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu.  
Svefnherbergi er með harðparketi á gólfi
Loft er yfir um 2/3 hluta hússins og skiptist það í svefnloft með dúk á gólfi og geymslu.  

Á lóð er geymsluskúr, smíðaður árið 2014. Möguleiki væri að einangra hann og nýta sem t.d. gestahús.

Annað
- Timburverönd er með suður hlið hússins og fyrir framan forstofu og að geymsluskúrnum. 
- Heiturpottur, skel er á veröndinni. 
- Raflagnir hafa verið endurnýjaðar að hluta.
- Vatnslagnir og ofnar hefur verið endurnýjað að hluta.
- Þakskyggni hefur verið endurnýjað.
- Húsið er á baklóð og er aðgengi um gönguleið frá Vesturgötu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Hvammur Fasteignasala
19.900.000 kr.468 þ./m²
+237,3% á 12 árum
26. febrúar 2015Þinglýstur kaupsamningur
5.900.000 kr.139 þ./m²
+96,7% á 3 árum
9. ágúst 2012Fyrsta sala
3.000.000 kr.71 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Vesturgata 2

625 Ólafsfjörður
19.900.000 kr.468 þ./m²
Einbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1945TegundEinbýlishúsStærð42,5 m²Herbergi1InngangurSérinngangurFasteignanúmerF21543694Fasteignamat13.900.000 kr.Brunabótamat20.650.000 kr.
Skráð hjá
Hvammur Fasteignasala
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑