fasteignasölur.is
Perla Inv. - Glæsileg íbúð á neðri hæð í San Miguel
1 af 58

Um eignina

PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.

 

Perla Investments kynnir:Glæsileg íbúð á neðri hæð í San Miguel

Glæsileg 3 svefnherbergja neðri hæð í raðhúsi í líflega bænum San Miguel de Salinas.

Íbúðin er 86,85m2 með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhús, borðstofa og stofa í björtu og rúmgóðu alrými þaðan sem gengið er út á svalir með fallegu útsýni. Einnig fylgir íbúðinni innréttaður kjallari sem og aðgangur að sameiginlegu sundlaugarsvæði með fallegri sundlaug og grænum svæðum þar sem kjörið er að njóta sólarinnar sem skín í meira en 300 daga á ári.

Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í veitingastaði, súpermarkaði, almenningssamgöngur o.fl.  Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman. 

Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, en innan við 8 km radíus er að finna fjóra 18 holu golfvelli, s.s. Villamartin golfvöllinn, Campoamor Real Golf Klúbbinn, Las Ramblas golfvöllinn og Las Colinas völlinn. 

Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.

Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!

Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á  https://www.perlainvest.com/ic/soluskra/costa-blanca-su-ur/san-miguel-de-salinas/glaesileg-ibu-a-ne-ri-hae-i-san-miguel-437.html      

Ref: B404  

Fylgdu okkur á Facebook -www.facebook.com/Perlainvest 

Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com .  Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.

Bjóðum einnig uppá leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/

Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu.  Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com 

Perla Inv. - Glæsileg íbúð á neðri hæð í San Miguel

1053 Spánn - Costa Blanca
59.700.000 kr.687 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 3 bað
Byggingarár2023TegundFjölbýlishúsStærð86,8 m²Herbergi4FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangC.C. Los Dolses nº 142, Villamartin, Orihuela Cost, 03189Sími893-3911

Allar 58 myndir

Upp ↑