fasteignasölur.is
Grandavegur 42
1 af 38

Um eignina

Skeifan fasteignamiðlun kynnir: Mjög falleg og björt 3ja herbergja íbúð á 2. hæð merkt 02-02 í lyftuhúsi með stæði í bílageymslu og stórum svölum með svalalokun. Íbúðin skiptist í; anddyri, hol, eldhúss, borðstofu og stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og gestasnyrtingu. Sérinngangur af svölum. Mikil lofthæð. Birt stærð íbúðar er 110.1 fm., þ.e.a.s. íbúð 102.2 fm. og geymsla 7.9 fm.

NÁNARI LÝSING:
Anddyri: Flísar á gólfi, og fataskápur.
Eldhús með dökkri innréttingu, hvítir efri skápar, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, spanhelluborð, gluggi. 
Opið er á milli borðstofu og eldhúss.
Stofa er með útgengi út á svalir til suð-austurs.
Hjónaherbergi er rúmgott og er með góðu skápaplássi. 
Barnaherbergi er með góðum skápum. 
Baðherberg er rúmgott, flísar á gólfi og hluta veggja. Walk-In sturta, upphengt salerni og vaskur í innréttingu. Speglar ofan við vask, handklæðaofn. Í þvottaskáp með rennihurðum er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara, þar er skolvaskur í borði.
Gestasnyrting: flísar á gólfi og hluta veggja, vaskur á innréttingu og spegill fyrir ofan.
Svalir eru til suðurs, með svalalokun og flísalagt gólf, rúmlega 20 fm.
Í nánast allri íbúðinni er aukin lofthæð 2,8-2,9 metrar. Á öllum gólfum öðrum en að framan greinir er hydrocork gólfefni frá Þ.Þorgrímsson. Allar innréttingar eru með dökkri viðaráferð. Innihurðir eru hvítar, yfirfelldar.
Geymsla: Sérgeymsla íbúðarinnar er í kjallara.
Bílastæði: sérmerkt bílastæði í bílakjallara, vel staðsett, hleðslusstöð fyrir rafbíla.
Sameiginlegur snyrtilegur garður. Í bílakjallara eru 19 gestastæði og þvottastæði. Mjög snyrtileg sameign.Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og íþróttahús. 


SKEIFAN SKILAR ÁRANGRI - SÍÐAN 1985

Skeifan fasteignasala | Suðurlandsbraut 46 | 108 Reykjavík | Opið frá kl. 9-17 mánudaga til föstudaga | www.skeifan.is

Skeifan á Facebook

Grandavegur 42

107 Reykjavík
102.900.000 kr.935 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
Byggingarár2016TegundFjölbýlishúsStærð110,1 m²Herbergi3InngangurSérinngangurBílskúrLyftaFasteignanúmerF23530042Fasteignamat97.800.000 kr.Brunabótamat78.520.000 kr.
Skráð hjá
Skeifan
HeimilisfangSuðurlandsbraut 46 , 108 ReykjavíkSími568-5556

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 38 myndir

Upp ↑