fasteignasölur.is
Greniteigur 15
1 af 23

Um eignina

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Greniteig 15, 230. Keflavík.

Um er að ræða glæsilegt 172,6 m2. 5. herbergja raðhús ásamt bílskúr á góðum stað í Keflavík.
Íbúðin er 143,4 m2 og bílgeymslan er 29,2 m2.

Eignin skiptist í anddyri, 4 svefnherbergi, eldhús, stofu, borðstofu,  tvö baðherbergi, þvottahús, bílskúr, svalir og pall með heitum potti.

Nánari lýsing:

Forstofa hefur flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými, stórir gluggar eru í stofunni sem gerir rýmið bjart og fallegt. Úr stofunni er útgengt út á pall með heitum potti.
Eldhús hefur viðarinnréttingu, helluborð, viftu og mikið skápapláss.
Þvottahús er rúmgott, þar er útgengi út á verönd.
Svefnherbergin eru 4 talsins, öll rúmgóð með parket á gólfi. Á neðri hæð er eitt svefnherbergi og á efri hæð eru þrjú.
A efri hæðinni er útengi út á stórar svalir með miklum möguleikum.
Baðherbergin eru tvö talsins, Gestasalerni er á neðri hæð með flísum á gólfi og veggjum að hluta, salerni, sturta og innrétting. Baðherbergið á efri hæð hefur flísar á gólfi og veggjum að hluta, salerni, innrétting, handklæðaofn og sturta.
Bílskúr er rúmgóður um 29,2 fm.
Lóð er ræktuð og afgirt.
Staðsetning er góð, stutt í alla helstu þjónustu.

Helstu endurbætur s.l. 5-6 ár að sögn seljanda:
Skipt um þak
Skipt um þakrennur
Skipt um járn yfir lofttúðum á hliðum hússins.
Nýjir gluggar á bakhliðinni út að Hringbraut (stofa niðri, hjónaherbergi uppi)
Steypuviðgerðir og málað utanhúss.
Steypuviðgerðir innanhúss.
Málun að stórum hluta innanhúss.
Nýr ofn í stofunni.
Nýtt parket í stofunni
Nýjar flísar í forstofunni
Nýr þrýstijafnari í þvottahúsi.


Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050 eða á netfangið: es@es.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. Gjaldskrá.
 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Eignamiðlun Suðurnesja
83.900.000 kr.486 þ./m²
+156,2% á 10 árum
6. október 2016Fyrsta sala
32.750.000 kr.190 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Greniteigur 15

230 Reykjanesbær
83.900.000 kr.486 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1971TegundRað-/parhúsStærð172,6 m²Herbergi5BílskúrFasteignanúmerF20877686Fasteignamat81.500.000 kr.Brunabótamat81.860.000 kr.
Skráð hjá
Eignamiðlun Suðurnesja
HeimilisfangHafnargata 50, 230 ReykjanesbærSími420-4050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑