fasteignasölur.is
Glitvellir 35
1 af 58

Um eignina

Einstakt og fjölskylduvænt einbýlishús á einni hæð með tvöföldum innbyggðum bílskúr við Glitvelli 35 í Hafnarfirði.
Eignin skiptist þannig að íbúðarhlutinn er 202,4 fm og bílskúrinn 57,6 fm, samtals 260,0 fm skv. fasteignaskrá.


Eignin skiptist með eftirfarandi hætti: Anddyri, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, sjónvarpsstofu, stofa/borðstofu, eldhús, þvottahús og bílskúr.

* Aukin lofthæð í stofu, borðstofu og eldhúsi.
* Tvö baðherbergi
* Heitur pottur
* Stór verönd með heitum potti.
* Hágæða innréttingar frá AXIS
* Innfelld lýsing í eldhúsi, stofu,borðstofu og sjónvarpsherbergi.
* Gólfhiti með stýringu fyrir hvert rými.
* Innbyggt ryksugukerfi
* Gas-arinn
* Hiti í stéttum
* Staðsett í enda á botnlangagötu

Nánari lýsing:
Afar rúmgóð forstofa með góðum fataskápum og flísar á gólfi.
Forstofuherbergi með skápum
Baðherbergi með sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn. Flísar á gólfi.
Eldhús,stofa og borðstofa í björtu alrými og með aukinni lofthæð.
Eldhús með hvítri innréttingu, innfelldur ísskápur, stæði fyrir uppþvottavél. Tveir ofnar í vinnuhæð.
Eyjutangi með góðu geymsluplássi og eldhúsborð á enda.
Stofa og borðstofa flæða skemmtilega saman við eldhús, gas-arinn er í stofu. Útgengt úr stofu á stóran sólpall með heitum potti.
Sjónvarpsherbergi sem er afar rúmgott.
Hjónaherbergi með fataherbergi og útgengt á pall þar sem hægt er að ná morgunsólinni.
Tvö barnaherberg með parket á gólfi.
Rúmgott baðherbergi með baðkari og sturtu, viðarinnrétting, flísar á gólfi og veggjum. Opnanlegur gluggi.
Þvottahús og geymsla innaf herbergjagangi.
Þvottahús með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, tauskúffur undir hvoru tæki. Mjög góðir skápar og vaskur.
Útgengt úr þvottahúsi á hellulagða verönd með snúrum.
Geymslurými er fyrir framan þvottahús og þaðan innangengt í bílskúr.
Bílskúr er afar rúmgóður eða 57,6 fm með aukinni lofthæð. Hann er flísalagður með gluggum á annari hliðinni.
Gott pláss fyrir tvo bíla, innangengt er einnig inn í bílskúr frá plani.
Sólpallur með skjólveggjum með heitum potti ( hitaveitupottur) og geymsluskúr með rafmagni og báruplasti á þaki. 
Gott bílaplan með hita , stæði fyrir 3-4 bíla. Snyrtilegt ruslagerði.
Gólfefni eignar eru parket og flísar.

Sjón er sögu ríkari þegar kemur að þessu fallega húsi sem staðsett er í enda á rólegri botnlangagötu.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. verslun, sund, leik- og grunnskóla, líkamsrækt, íþróttasvæði Hauka, fallegar göngu- og hjólaleiðir.


Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is

og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is



Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Ás
169.900.000 kr.653 þ./m²
+24,2% á 5 árum
21. janúar 2022Fyrsta sala
136.750.000 kr.526 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Glitvellir 35

221 Hafnarfjörður
169.900.000 kr.653 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2007TegundEinbýlishúsStærð260 m²Herbergi6InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF22938801Fasteignamat160.750.000 kr.Brunabótamat146.400.000 kr.
Skráð hjá
Ás
HeimilisfangFjarðargata 17, 220 HafnarfjörðurSími520-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 58 myndir

Upp ↑