fasteignasölur.is
Hvassahraun 27
1 af 41

Um eignina

Ágúst Ingi Davíðsson, Magnús Már Lúðvíksson og RE/MAX fasteignasala kynna: Fallegt og sjármerandi heilsárshús á 2 hæðum við sjávarsíðuna að Hvassahraun 27, 191 Vogum 

Skráning eignar: Heilsárshús byggt 2003, 80,0 fm geymsla, bátaskýli innréttað sem gestahús með arinn 28,8 fm og geymsla sem er nýtt sem vinnuskúr í dag 16,0 fm. samtals: 124,8 
Efri hæðin er ekki skráð í fermetrafjölda hússins og því gólfflötur mun meiri en uppgefnir fermetrar gefa til kynna. 

Húsið stendur á fallegum stað alveg við sjóinn með miklu útsýni. Mikil náttúruparadís rétt við Höfuðborgina.
Húsið er í ca. 10 mínútna akstursfjarlægð frá Hafnarfirði í átt að Reykjanesi.

Bókið skoðun hjá Ágústi í síma 787-8817 eða agust@remax.is / maggi@remax.is

Nánari lýsing: 
Neðri hæð:
Anddyri: Nátturuflísar á gólfi, rúmgóð. 
Þvottahús: Flísar á gólfi, borðpláss, skolvaskur, hillur, gluggi. 
Svefnherbergi: Flísar á gólfi, rúmgott. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, handlaug, salerni, sturta (ótengd)
Eldhús: Flísar á gólfi, SMEG ofn og gashellur, tengi fyrir uppþvottavél, góður borðkrókur. 
Stofa: Flísar á gólfi, Gólfsíðir fallegir franskir gluggar með glæsilegu útsýni út á hafið. 
Efri hæð: Steyptur stigi
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, frístandandi baðkar, handlaug, útdraganlegar skúffur undan súðinni. 
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, hluta til undir súð, útgengt út á svalir með glæsilegu útsýni. 
Geymsla: Innaf hjónaherbergi. 

Gestahús: Sjarmerandi gestahús með eldhúsi og fallegum arinn. 
Geymsla:  Með góðum hillum og sjá smá millilofti, sérgeymsla fyrir innan. 


Skráning lóðar: Sumarbústaðaland 7740,0 m², Lóðaleigusamningur var að renna út og verður endurnýjaður með nýjum eiganda. 
leigugjaldið fyrir hið leigða land kr. 125.000 á ári. Leigufjárhæð er verðtryggð miðað við vísitölu neysluvöruverðs til verðtryggingar, til viðmiðunar er vísitala janúar 2024 sem er 605,8 stig.Árlega á meðan leigutaki hefur afnot af landinu.

Hiti er í öllum gólfum í aðaleigninni. Vatn kemur úr borholu og er það hitað með hitatúpu.

Sértæk skipulagsákvæði:
30 lóðir. Heimilt verður að hafa gististarfsemi í frístundahúsum á skipulagssvæðinu skv. flokki I (heimagisting) og flokki II (gististaður án veitinga) í samræmi við reglugerð nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Tegund gististaða í flokki II (gististaðir án veitinga) sé aðeins í frístundahúsum í samræmi við h-lið 4. gr. áðurnefndrar reglugerðar. Sækja þarf um rekstarleyfi til sýslumanns vegna starfsemi í flokki II, gististaður án veitinga, í samræmi við 25. gr. áðurnefndrar reglugerðar. Sú takmörkun er sett að aðeins er gert ráð fyrir að 10 lóðir á svæðinu geti á hverjum tíma verið nýttar fyrir gististarfsemi í flokki II til að koma í veg fyrir of mikla umferð og ónæði.

Frekari upplýsingar veitir Ágúst Ingi Davíðsson löggiltur fasteignasali í síma 787-8817 eða agust@remax.is / maggi@remax.is
 

Hvassahraun 27

191 Vogar
82.900.000 kr.664 þ./m²
Sumarhús2 svefn · 2 bað
Byggingarár2003TegundSumarhúsStærð124,8 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22668984Fasteignamat37.950.000 kr.Brunabótamat67.800.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 41 myndir

Upp ↑