fasteignasölur.is
Goðasalir 1
1 af 36

Um eignina

Goðasalir 1, 201 Kópavogi. Endaraðhús á tveimur hæðum ásamt innbyggðum bílskúr, samtals 225 FM. Glæsilegur garður í góðri rækt með heitum potti ásamt gufuklefa sem á eftir að tengja. Fallegt og gott fjölskylduhús á frábærum stað í Kópavogi með glæsilegu útsýni yfir á Reykjanesið, Kópavoginn og Snæfellsjökul.  Húsið stendur ofan við götu og ekki eru hús á móti og því næg bílastæði. Neðri hæðin skiptist í forstofu, gestasalerni með sturtu, stóra stofu með arni og borðstofu, eldhús, þvottaherbergi, geymslu og bílskúr.  Á efri hæð eru 5 svefnherbergi: hjónaherbergi með fataherbergi innaf og fjögur rúmgóð barnaherbergi, sjónvarpshol og baðherbergi ásamt svölum með góðu útsýni.  


Fasteignamat næsta árs verður: 173,3 millj

Forstofa: er með gólfhita og flísum ásamt góðum fataskáp með speglum.

Gestasalerni: er flísalagt og með gólfhita. Sturtuklefi í enda rýmisins.
Stofa: er rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengi er frá stofunni út á pallinn í garðinum. Í stofunni er innbyggður arinn frá Funa.
Borðstofa: samtengd stofunni er rúmgóð. Ljóst parket á gólfi. Opið er bæði yfir í stofuna og í eldhúsið.
Eldhús: flísalagt og með gólfhita. Það er rúmgott með góðri innréttingu og eyju. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingunni. Góðir gluggar.

Þvottaherbergi:  rúmgott með flísum á gólfi. Vaskur og vinnuborð. Útgengi út á veröndina á bak við húsið frá þvottaherberginu. Þar er gert ráð fyrir þvottasnúrustaur.

Geymsla: Góð geymsla innaf þvottaherberginu á milli bílskúrs og þvottaherbergis.

Bílskúr:  Innbyggður 27,2 FM. 3ja fasa rafmagn ásamt innréttingu með vaski og heitu og köldu vatni. Innangengt er frá honum í húsið. Rafmagnsopnun m/fjarstýringu.

Gengið er upp á efri hæðina um steyptan stiga með parketi á gólfi. Handrið er frá Járnsmiðju Óðins. Aukin lofthæð er á efri hæð, ljós eru innfelld.

Hjónaherbergi + fataherbergi og fjögur barnaherbergi: Öll herbergin eru með parketi á gólfi.

Baðherbergi:  flísalagt og með gólfhita. Baðkar, innrétting ásamt handklæðaofni. Fjórir litlir gluggar setja skemmtilegan svip á rýmið.

Alrými:  Setustofa/sjónvarpshol er fyrir miðju hæðarinnar fyrir framan svefnherbergin og er útgengt á vestursvalir með fallegu útsýni.

Nánari upplýsingar gefur Gústaf Adolf lgf., gustaf@miklaborg.is / 895-7205.

Goðasalir 1

201 Kópavogur
172.500.000 kr.764 þ./m²
Rað-/parhús5 svefn · 2 bað
Byggingarár2000TegundRað-/parhúsStærð225,9 m²Herbergi7InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2239490Fasteignamat166.300.000 kr.Brunabótamat113.660.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑